Myrt eftir að hafa ítrekað leitað til lögreglu út af áreiti fyrrverandi kærasta Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. mars 2017 13:00 Shana Grice.
Shana Grice var nítján ára gömul þegar hún var myrt í svefnherberginu sínu í Portslade í Sussex á Englandi í ágúst síðastliðnum. Hún hafði verið skorin á háls og svo hafði verið kveikt í herberginu en fyrrverandi kærasti hennar, Michael Lane, var ákærður fyrir morðið og fara réttarhöldin nú fram við Lewes Crown-dómstólinn en Lane neitar sök í málinu. Fram kom við réttarhöldin fyrir helgi að að Grice hafði ítrekað leitað til lögreglunnar vegna þess að hún óttaðist Lane. Sagði hún lögreglunni í febrúar, hálfu ári áður en hún var myrt, að hann sæti um hana og hefði falið sig í kringum heimili hennar. Þá hefði hann sent henni blóm og skilið eftir miða á bíl á þáverandi kærastanum hennar, sem hún hafði byrjað að hitta eftir að hún og Lane hættu sama, þar sem á stóð: „Shana mun alltaf halda fram hjá þér.“ Lane á að hafa átt mjög erfitt með að sætta sig við sambandsslit hans og Grice og nýja sambandið hennar. Á hann að hafa sagt við vin sinn: „Hún mun borga fyrir það sem hún hefur gert.“Refsuðu Grice fyrir að eyða tíma lögreglunnar Lane neitaði því í mars að hafa ráðist á Grice og reytn að taka af henni símann hennar. Hann sýndi lögreglunni skilaboð frá henni þar sem hún sagðist vilja vera áfram með honum. Lögreglan tók vægast sagt lítið mark á Grice og refsuðu henni í eitt sinn fyrir að eyða tíma lögreglunnar með fölskum ásökunum á hendur Lane og fyrir að hafa ekki sagt frá því að hann væri fyrrverandi kærastinn hennar.Michael Lane.Þann 9. júlí fékk Lane hins vegar viðvörun og var sagt að halda sig frá heimili Grice þar sem hann hafði stolið lykli að húsinu og farið inn til að horfa á hana sofa. Daginn eftir tilkynnti Grice að í hana hefði verið hringt nokkrum sinnum úr óþekktu númeri og í eitt skiptið hefði verið andað hátt í símann. Lögreglan sagði henni hins vegar að málið yrði ekki rannsakað frekar og hún fékk sömu skilaboð tveimur dögum seinna þegar hún tilkynnti að Lane hefði elt hana.„Það er augljóslega eitthvað ekki í lagi“ Við réttarhöldin var spiluð upptaka af símtali milli Grice og Lane þar sem hún spurði hann út í þessa undarlegu hegðun hans og hann svaraði því til að það væri eitthvað ekki í lagi með hann. Hún stakk upp á því að hann leitaði sér hjálpar hjá sálfræðingi. „Það er augljóslega eitthvað ekki í lagi en ég veit ekki hvað það er. Ég þarf að finna út úr því, eða láta loka mig inni eða eitthvað,“ sagði Lane þá. Lane neitar sök í málinu eins og áður segir en fyrir liggur að hann kom að Grice þar sem hún var lá í blóði sínu í rúminu í herberginu sínu. Lane sagði fyrir dómi að honum hefði ekki dottið í hug að hringja á neyðarlínuna því hann hafi verið í sjokki og ekki vitað hvað hann ætti að gera.Losaði sig við blóðug föt Hann athugaði ekki hvort hún væri á lífi og sagði að hann hefði ekki tekið eftir neinum eldi í herberginu. Þá neitaði Lane því að hafa kveikt í en viðurkenndi að hafa keypt bensín því hann hefði orðið svo þunglyndur í kjölfarið á andláti afa hans. Lane sagðist hafa farið heim og ekki sagt neinum í fjölskyldu sinni frá Grice því hann vildi ekki að sér yrði kennt um dauða hennar. Hann fór svo í sturtu og lét athuga með lottómiða í sjoppunni en tók þá eftir blóði í buxunum sínum. Lane heyrði svo sírenuvæl og losaði sig því við buxurnar og bolinn. Hann fór svo til tannlæknis og í vinnuna áður en hann var handtekinn. Við réttarhöldin viðurkenndi Lane að hafa nokkrum sinnum logið að lögreglunni við rannsókn málsins. Lesa má nánar um málið á vef BBC, Guardian og Independent.
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira