Átök milli franskra mótmælenda og lögreglu atli ísleifsson skrifar 11. febrúar 2017 23:11 Mótmælendur hentu Mólotov-kokteilum í átt að lögreglu. Vísir/afp
Mótmælendur í úthverfum Parísarborgar köstuðu ýmsu lauslegu í átt að lögreglu og kveiktu í bílum og ruslagámum í kvöld. Mikil reiði kraumar víða í úthverfum frönsku höfuðborgarinnar vegna máls þar sem lögreglumaður er grunaður um að hafa beitt annan mann kynferðisofbeldi eftir að sá var handtekinn fyrr í mánuðinum í Aulnay-sous-Bois. Lögreglumaður er grunaður um að hafa beitt hinum 22 ára manni kynferðislegu ofbeldi eftir að hann var handtekinn og þrír starfsbræður liggja undir grun um að hafa beitt hann óhóflegu líkamlegu ofbeldi. Maðurinn var handtekinn fimmtudaginn 2. febrúar. Í frétt SVT segir að mikil mótmæli hafi blossað upp í úthverfunum þann 7. febrúar og þau héldu áfram í kvöld. Talsmaður Parísarlögreglunnar segir að um tvö þúsund manns hafi safnast saman og mótmælt friðsamlega í Bobigny, nærri Aulnay-sous-Bois, til að lýsa yfir stuðningi við hinn handtekna, sem í frönskum fjölmiðlum gengur undir nafninu Theo. Þegar leið á mótmælin fór hins vegar hópur manna að kasta Mólotov-kokteilum og lauslegum hlutum í átt að lögreglu. Kveikt var í fjölda bíla og þurfti lögregla að hafa hraðar hendur til að bjarga litlu barni sem fast var inni í einum bílnum.
Tengdar fréttir Sakar lögregluþjóna um grimmilega árás og nauðgun Ungur franskur maður segir lögregluþjóna hafa gengið í skrokk á sér og stungið kylfu í endaþarm sinn. 7. febrúar 2017 14:31 Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Sjá meira
Sakar lögregluþjóna um grimmilega árás og nauðgun Ungur franskur maður segir lögregluþjóna hafa gengið í skrokk á sér og stungið kylfu í endaþarm sinn. 7. febrúar 2017 14:31