Fillon segist einungis draga framboð til baka ef ráðist verður í lögreglurannsókn atli ísleifsson skrifar 27. janúar 2017 14:47 Penelope og Francois Fillon. Vísir/AFP
Francois Fillon, forsetaefni franskra Repúblikana, segist einungis munu draga framboð sitt til baka ef ákveðið verður að ráðast í lögreglurannsókn vegna ásakana um að eiginkona hans hafi þegið fé úr opinberum sjóðum án þess að hafa skilað nokkru starfsframlagi. Málið hefur mikið verið til umræðu í Frakklandi síðustu daga eftir að tímaritið Le Canard Enchaine fullyrti að eiginkona Fillon, Penelope, hafi þegið um 500 þúsund evrur, um 62 milljónir króna, sem aðstoðarmaður þingmannsins Fillon, án þess að fyrir liggi nokkrar sannanir um að hún hafi raunverulega starfað sem aðstoðarmaður þingmannsins. Í frétt BBC segir að hún sé einnig sögð hafa fengið bitling frá auðmanni, vini eiginmanns. Er hún sögð hafa þegið um 100 þúsund evrur, rúmar 12 milljónir króna, fyrir útgáfustarf. Fillon hefur fordæmt umfjöllun tímaritsins og segir ekkert misjafnt hafa átt sér stað í tengslum við vinnu eiginkonu sinnar. Kveðst hann munu leggja fram sannanir máli sínu til stuðnings. Saksóknarar hafa hafið forrannsókn á málinu. Fillon er talinn eiga góða möguleika á að bera sigur úr býtum í frönsku forsetakosningunum í vor þar sem talið er hann og Marine Le Pen, forsetaefni Þjóðfylkingarinnar, eru talin að munu berjast um embættið í síðari umferð kosninganna.
Tengdar fréttir Framundan á árinu 2017: Kosningar í Evrópu, EM í fótbolta og fleiri frídagar um jól Vísir hefur tekið saman brot af því markverðasta sem verður á dagskrá á erlendum vettvangi á árinu 2017 sem er nú gengið í garð. 2. janúar 2017 16:00 Hamon og Valls mætast í síðari umferðinni Benoît Hamon hlaut flest atkvæði í fyrri umferð kosninga þar sem verið er að velja forsetaefni franskra vinstrimanna. 23. janúar 2017 08:28 Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira
Framundan á árinu 2017: Kosningar í Evrópu, EM í fótbolta og fleiri frídagar um jól Vísir hefur tekið saman brot af því markverðasta sem verður á dagskrá á erlendum vettvangi á árinu 2017 sem er nú gengið í garð. 2. janúar 2017 16:00
Hamon og Valls mætast í síðari umferðinni Benoît Hamon hlaut flest atkvæði í fyrri umferð kosninga þar sem verið er að velja forsetaefni franskra vinstrimanna. 23. janúar 2017 08:28