Einkunnir íslensku stelpnanna: Okkar stelpur nokkrum skrefum á eftir í kvöld Íþróttadeild 365 skrifar 26. júlí 2017 20:47 Fanndís Friðriksdóttir í leiknum í kvöld. Vísir/Getty
Íslenska kvennalandsliðið tapaði í kvöld þriðja leiknum sínum í röð á Evrópumótinu í Hollandi og koma því stigalausar heim af EM 2017. Ísland tapaði 3-0 á móti Austurríki í lokaleiknum í Rotterdam en hafði áður tapað á móti Frakklandi og Sviss. Austurríska liðið var í stórsókn frá fyrstu mínútu leiksins en þær austurrísku skoruðu þó ekki mörkin sín í fyrri hálfleik fyrr en að íslensku stelpurnar voru aðeins farnar að bíta frá sér í sókninni. Austurríki fékk fyrra markið á silfurfati frá Guðbjörgu markverði og var síðan komið í 2-0 aðeins átta mínútum síðar. Bæði mörkin voru af ódýrari gerðinni þar sem íslensku stelpurnar voru að tapa baráttunni eftir fyrirgjafir inn í teig. Þetta var annars erfitt kvöld fyrir okkar stelpur sem áttu oft í miklum erfiðleikum á móti spútnikliði íslensk riðilsins. Austurríska liðið bætti síðan við einu marki í seinni hálfleik og vann sannfærandi sigur. Hér fyrir neðan má sjá hvernig íslensku stelpurnar stóðu sig í leiknum í kvöld að mati íþróttadeildar Vísis og Fréttablaðsins.Guðbjörg Gunnarsdóttir, markvörður 4 Eftir að vera öryggið upp málað allt mótið og framan af leik í kvöld gerði Gugga sig seka um skelfileg mistök sem leiddu til fyrsta marksins. Leit ekkert frábærlega út í öðru markinu. Varði mikið af skotum en sat uppi með að fá á sig þrjú mörk.Glódís Perla Viggósdóttir, miðvörður 4 Sæmilegur leikur hjá Glódísi en skiptingarnar yfir á vinstri vænginn fóru of oft á leikmenn austurríkis sem bjó til skyndisóknir á íslenska liðið.Sif Atladóttir, miðvörður 5 Var í leikmanninum sem skoraði fyrra markið en reiknaði auðvitað með að Gugga myndi halda boltanum Tæklaði og barðist og átti fín innköst. Átti nokkrar lykiltæklingar enda var mikið að gera hjá varnarmönnunum.Anna Björk Kristjánsdóttir, miðvörður 4 Varðist í heildina ágætlega en átti í miklu basli með að koma boltanum frá sér. Virkaði nokkuð óörugg eftir að koma inn í liðið fyrir leikinn.Hólmfríður Magnúsdóttir, hægri vængbakvörður 4 Átti nokkra fína spretti í stöðu sem hún hefur aldrei spilað áður en átti erfitt uppdráttar í varnarleiknum og bauð ekki upp á það fram á við sem þjálfarinn bjóst vafalítið við með því að setja sóknarmann í þessa stöðu.Sara Björk Gunnarsdóttir, miðjumaður 4 Var úti um allt en alltof sjaldan á réttum stað. Átti einn fallegan snúning í fyrri hálfleik en kom annars lítið við sögu í leiknum nema að hlaupa á sig gat að vanda.Dagný Brynjarsdóttir, miðjumaður 4 Sést alltof lítið til hennar á miðjunni. Var í eltingaleik við austurrísku miðjumennina, vann ekki nógu marga bolta og átti í vandræðum með að skila boltanum frá sér.Hallbera Guðný Gísladóttir, vinstri vængbakvörður 3 Enn einn erfiður dagurinn á skrifstofunni hjá Hallberu á þessu móti. Gullfóturinn skilaði litlu í þessum leik og toppaði sig með aukaspyrnu úr góðri stöðu beint í varnarvegginn.Agla María Albertsdóttir, hægri kantmaður 3 Virkaði of lítil í þetta verkefni en reyndi hvað hún gat að taka þau hlaup sem hún átti að taka. Hún hljóp og barðist en var næstum ekkert í boltanum, sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem hún sást ekki.Fanndís Friðriksdóttir, vinstri kantmaður 5 Enn eina ferðina mest viljug í íslenska liðinu til að sækja á markið. Átti nokkur fín skot, þar af eitt eftir glæsilegt einstaklingsframtak, en var ekki nógu mikið í boltanum.Harpa Þorsteinsdóttir, framherji 4 Þrátt fyrir að vera ekki í sínu besta formi sýndi Harpa hversu mikið hefur munað um hana þegar kemur að uppspili liðsins. Gerði vel í að halda boltanum og hjálpa að færa liðið framar en var langt því frá nægilega ógnandi sem fremsti maður.Varamenn:Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir - (Kom inn á fyrir Hólmfríði á 51. mínútu) 4 Sem fyrr barðist þessi mikli nagli eins og ljón en þessi staða virðist ekki vera fyrir hana. Sérstaklega ekki þegar kemur að sóknarleiknum. Skrítið að taka út Hólmfríði fyrir hana þegar það þurfti að skora.Berglind Björg Þorvaldsdóttir - (Kom inn á fyrir Hörpu Þorsteinsdóttur á 71. mínútu) Lék ekki nógu lengiSandra María Jessen - (Kom inn á fyrir Öglu Maríu Albertsdóttur á 83. mínútu) Lék ekki nógu lengi
EM 2017 í Hollandi Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti Kane lendir um helgina Körfubolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir ÍBV - FH | Fyrsti leikur ÍBV eftir fall Grindavík/Njarðvík - ÍBV | Gríðarleg barátta á lokasprettinum Syndaaflausn Infantino: „Páfinn yrði himinlifandi“ Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Sjá meira