Gáfu nemendum lífshættulegt magn koffíns Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 25. janúar 2017 18:01 Nemendurnir áttu að fá 0,3 grömm af koffíni en fengu þess í stað 30 grömm. Vísir/Skjáskot
Háskóli í Bretlandi hefur verið sektaður eftir að tveir nemendur lentu í lífshættu þegar þeim var gefið hundraðfalt magn koffíns, sem heilbrigt getur talist að innbyrða, í tilraun. BBC greinir frá. Um er að ræða Northumbria háskólann í Newcastle, en skólinn hlaut sekt sem nam 400 þúsund pundum vegna málsins. Fulltrúar skólans sögðu frammi fyrir dómstólum, að þeim þætti málið innilega leitt. Um var að ræða tvo nemendur í íþróttafræði, en gera átti tilraun á þeim til að finna út hver áhrif koffíns á einstaklinga eru, á meðan æfingu stendur. Nemendum tveim var gefið því sem samsvarar koffínmagni í 300 bollum af kaffi. Um var að ræða mistök af hálfu rannsakenda, sem reiknuðu út vitlaust magn koffíns, en nemendurnir áttu að fá 0,3 grömm af koffíni. Þeir fengu þess í stað 30 grömm, en koffínið var í duftformi. Eftir að nemendurnir innbyrtu koffínið urðu þeir strax mjög veikir og varð að fara með þá í flýti á bráðamótttöku, þar sem koffínið var hreinsað úr líkama þeirra. Í máli saksóknara kom fram að nemendurnir hefðu verið í bráðri lífshættu, en til eru dæmi þess að fólk láti lífið eftir að hafa innbyrt einungis 18 grömm af koffíni, í einum vettvangi. Báðir nemendurnir hafa jafnað sig að fullu líkamlega, en annar hefur þó átt í örðugleikum með minni. Skólinn hyggst fara yfir verkferla á rannsóknum sem gerðar eru innan skólans, í kjölfar málsins.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira