Ein þekktasta baráttukonan fyrir rétti kvenna til fóstureyðinga er látin Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 18. febrúar 2017 20:38 McCorvey, sem var frumkvöðull í réttindabaráttu kvenna en varð seinna trúrækin. Vísir/EPA
Norma McCorvey, einn þekktasti frumkvöðullinn í baráttu kvenna fyrir réttinum til fóstureyðinga í Bandaríkjunum, er látin, 69 ára að aldri. BBC greinir frá. McCorvey var 25 ára gömul árið 1973 þegar hún stefndi yfirvöldum í Texas-ríki til hæstaréttar Bandaríkjanna undir dulnefninu „Jane Roe“ vegna fóstureyðingarlöggjafar sem kvað á um að fóstureyðingar væru ólöglegar nema í þeim tilvikum þar sem líf móðurinnar var í hættu. Málið vakti mikla athygli á sínum tíma og er jafnan talið marka vatnaskil í réttindabaráttu kvenna en hæstiréttur kvað á um að yfirvöldum í Texas væri óheimilt að banna konum að gangast undir fóstureyðingu á grundvelli þess að konur ættu að eiga sama valfrelsi í þessum málum líkt og öðrum. Ástæður þess að McCorvey stefndi ríkinu voru þær að hún hafði árið 1969 orðið ólétt að þriðja barni sínu og var henni gert að eignast barnið, þrátt fyrir að hún hefði ekki áhuga á því. Hún hafði áður logið því að henni hefði verið nauðgað, í tilraun til þess að fá heimild til fóstureyðingar. Hún eignaðist barnið en lét það af hendi til ættleiðingar. McCorvey átti raunar síðar eftir að verða einkar trúrækin og íhaldssöm manneskja og er hún talin hafa séð eftir gjörðum sínum síðar meir og varð hún andsnúin fóstureyðingum. Fyrir málaferli McCorvey gegn Texas ríki höfðu sum fylki í Bandaríkjunum þegar hafist handa við að lögleiða fóstureyðingar en fjöldi kvenna þurfti þó að sækja fóstureyðingu með ólöglegum hætti, í óöruggum aðstæðum víðsvegar um Bandaríkin.
Mest lesið Sjö fluttir með þyrlu eftir rútuslys á Suðurlandi Innlent Allir um borð í rútunni Íslendingar Innlent Segir Enok hafa setið fyrir manni sem stakk hann hálfu ári áður Innlent „Við munum vinna þennan slag“ Erlent Enginn kemst sjálfkrafa í könnunarhóp Prósents Innlent „Það er svo ótrúlega erfitt að vera synjað um að hitta börnin sín” Innlent Sagður hafa slegið eiginkonu sína ítrekað með steikarpönnu Innlent Fjölda saknað eftir loftárás á byggingavöruverslun Erlent Lögreglan náði lausum grís Innlent „Þetta er bara strangheiðarleg jarðskjálftahrina“ Innlent Fleiri fréttir Fjölda saknað eftir loftárás á byggingavöruverslun Halda áfram árásum á Rafah Hafnaði beiðni Baldwin um frávísun „Við munum vinna þennan slag“ Vilja banna snjallsíma fyrir yngri en 16 ára Segja Pútín vilja vopnahlé sem miðist við núverandi víglínur Sá sem át ekkert nema McDonalds í mánuð er fallinn frá Ísrael eigi að láta af öllum hernaðaraðgerðum í Rafah „Þetta setti af stað dómínó-áhrif út um allan heim“ Óttast um afdrif ríflega hundrað eftir aurskriðu Allsherjarsigur gegn Hamas ólíklegur Segir yfirlýsingar um að FBI hafi mátt skjóta Trump stórhættulegar Segir samstöðu lykilinn að jarðgangagerð Færeyinga Fjórir látnir eftir að bygging hrundi á Majorku Munu þurfa að afplána í Kósovó Skoða að leyfa árásir í Rússlandi með bandarískum vopnum Segja fiskiolíu geta aukið líkurnar á gáttatifi og heilablóðfalli Kínverjar æfa innrás á Taívan Níu létust á framboðsfundi Fjölskyldur birta myndskeið af blóðugum gíslum Hamas-liða Annar umdeildur fáni hékk við annað hús dómara Höfða mál gegn hundrað lögregluþjónum vegna árásarinnar í Uvalde Boðar til kosninga í Bretlandi í sumar Saka Rússa um að skapa ótta á Eystrasalti Mikill eldur í höfuðstöðvum Novo Nordisk Lýsa hrikalegum aðstæðum í flugi Singapore Airlines: „Það var svo mikið öskrað“ Saka Ísraela um að misbeita lögum til þess að stöðva streymi frá Gasa Æðsti klerkurinn stýrði útför íranska forsetans Lætur líklega reyna aftur á þungunarrofsfrumvarpið Rússar sagðir hafa skotið geimvopni á sporbaug Sjá meira