Skattanefnd mun ekki falast eftir skattskýrslum Trumps nína hjördís þorkelsdóttir skrifar 13. febrúar 2017 23:32 Trump vill ekki opna bókhaldið. vísir/epa
Skattaeftirlitsnefnd sem starfar á vegum fulltrúadeildar bandaríska þingsins kemur ekki til með að falast eftir skattskýrslum Donalds Trumps. Þetta kemur fram á vef fréttastofu Reuters. Þingmenn úr röðum Demókrata hafa þrýst á nefndina að taka skattskýrslur Trumps til skoðunar til þess að hægt sé að átta sig betur á meintum viðskiptatengslum forsetans við erlend ríki, þar á meðal Rússland. „Ef þingið byrjar að nota völd sín til þess að hnýsast eftir skattskýrslum forsetans, hvað kemur þá í veg fyrir að venjulegir bandarískir borgarar fái sömu meðferð?,“ sagði Kevin Brady, formaður nefndar fulltrúadeildar þingsins sem meðal annars sér um mál er viðkoma skattinnheimtu og útgjöldum úr ríkissjóði. „Persónuvernd og réttur til einkalífs eru ennþá mikilvæg réttindi í landinu og nefndin hyggst ekki grafa undan þeim,“ sagði hann enn fremur. Trump hefur til þessa verið ragur við að opinbera bókhald sitt en hefð er fyrir því að forsetaframbjóðendur geri slíkt. Hillary Clinton, mótframbjóðandi Trumps í forsetakosningunum sem fram fóru í nóvember á síðasta ári, skaut í kosningabaráttunni föstum skotum að Trump fyrir að leyna gögnunum fyrir almenningi. Trump afsakaði sig með því að benda á að hann sjálfur auk fyrirtækja sinna væru í skoðun hjá skattayfirvöldum og hann gæti því ómögulega birt skýrslur sínar. Hins vegar eru ekki neinar reglur um að ekki megi opinbera slík gögn þótt þau séu í skoðun. Demókratar eru margir tortryggnir vegna tregðu hans til þess að opinbera bókhald sitt og telja að þeir gætu komið upp um meinta hagsmunaárekstra forsetans vegna alþjóðlegra viðskipta.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira