21 alvarlega særður eftir árásina í London Atli Ísleifsson skrifar 4. júní 2017 15:17 Þetta er þriðja hryðjuverkaárásin í Bretlandi á síðustu þremur mánuðum. Vísir/afp
Talsmaður heilbrigðisyfirvalda segir að 21 sé alvarlega særður eftir hryðjuverkaárásina á London Bridge og við Borough Market í gærkvöldi. Sjö létust í árásinni, auk árásarmannanna þriggja sem voru skotnir til bana af lögreglu. Árásarmennirnir voru skotnir til bana af átta lögreglumönnum sem alls skutu fimmtíu skotum í átt að mönnunum. Fyrir slysni varð óbreyttur borgari einnig fyrir skoti. Þetta sagði Mark Rowley hjá Lundúnalögreglunni nú síðdegis. Tólf manns hafa verið handteknir í Barking, austur af bresku höfuðborginni, í kjölfar húsleitar í íbúð eins árásarmannanna. Hvítum sendiferðabíl var ekið á gangandi vegfarendur á London Bridge um klukkan 22 að staðartíma í gærkvöldi. Eftir að bílnum hafði verið stöðvað héldu þrír árásarmenn út úr bílnum og stungu fólk með hníf nærri Borough Market. Þeir voru skotnir til bana af lögreglu innan við átta mínútum eftir að fyrsta tilkynningin barst um atvikið á London Bridge. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, fordæmdi árásina og sagði að nú væri tími til að segja að nóg sé komið. Þetta er þriðja hryðjuverkaárásin í Bretlandi á síðustu þremur mánuðum. Að sögn íbúa í blokkinni í Barking hafði maðurinn sem talinn er hafa verið einn árásarmanna, búið í blokkinni í þrjú ár og verið giftur tveggja barna faðir. Flestir bresku stjórnmálaflokkanna hafa gert hlé á kosningabaráttu sinni, en henni verður fram haldið á morgun. Þingkosningar fara fram í landinu á fimmtudaginn 8. júní.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Fleiri fréttir Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Sjá meira