Alabamabúar gætu kosið meintan barnaníðing á þing í dag Kjartan Kjartansson skrifar 12. desember 2017 12:30 Moore er sjötugur en hann er sakaður um að hafa sótt í unglingsstúlkur þegar hann var saksóknari á fertugsaldri. Vísir/AFP
Ómarktækur munur er á frambjóðendum demókrata og repúblikana í skoðanakönnunum fyrir kosningar í Alabama í Bandaríkjunum sem fara fram í dag. Ásakanir um meint barnaníð frambjóðanda repúblikana hefur umturnað kosningabaráttunni en repúblikanar hefðu alla jafna átt sigur vísan í ríkinu. Kosið verður um annað sæta Alabama í öldungadeild Bandaríkjaþings í sérstökum kosningum í dag. Sætið losnaði eftir að Jeff Sessions tók við embætti dómsmálaráðherra fyrr á árinu. Alabama er eitt íhaldssamasta ríki Bandaríkjanna. Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði sigur á Hillary Clinton þar með tæplega þrjátíu prósentustiga mun í forsetakosningunum í fyrra. Demókratar hafa ekki átt öldungadeildarþingsæti í Alabama í tuttugu ár, að því er kemur fram í frétt Reuters. Gengi Roy Moore, frambjóðanda repúblikana, í skoðanakönnunum hafði verið slakt fyrir repúblikana jafnvel áður en ásakanir komu fram um að hann hefði átt kynferðislegt samneyti við unglingsstúlkur. Hann var þó með nokkuð öruggt forskot á demókratann Doug Jones. Telur samkynhneigð eiga að vera ólöglegaMoore var enda sérlega umdeildur frambjóðandi fyrir. Honum hafði tvisvar verið vikið úr dómaraembætti í Alabama, annars vegar fyrir að neita að fjarlægja stóran minnisvarða um boðorðin tíu fyrir utan dómshús og hins vegar fyrir að neita að virða dóm Hæstaréttar sem lögleiddi hjónabönd samkynhneigðra. Í gegnum tíðina hefur Moore meðal annars haldið því ranglega fram að sum svæði í Bandaríkjunum væru undir sjaríalögum múslima og að hryðjuverkaárásirnar 11. september í New York hafi átt sér stað vegna þess að Bandaríkjamenn væru að verða fráhverfir guði kristinna manna. Hann hefur einnig sagt að samkynhneigð ætti að vera ólögleg. Þá hafa gömul ummæli hans um að Bandaríkin væru betri ef tilteknum ákvæðum hefði aldrei verið bætt við stjórnarskrá Bandaríkjanna skotið upp kollinum. Þeirra á meðal eru ákvæði sem veittu konum og svörtum kosningarétt. Doug Jones er fyrrverandi saksóknari sem sótti meðal annars félaga í Kú Klúx Klan til saka vegna dauða ungra svartra stúlkna í sprenguárás í kirkju á 7. áratugnum.Vísir/AFP Skoðanakannanir um víðan völl eftir ásakanirnar Þegar nokkrar konur stigu fram og sögðu frá því hvernig Moore hefði átt við þær kynferðislegt samneyti eða gengið á eftir þeim þegar þær voru unglingar en hann saksóknari á fertugsaldri í síðasta mánuði varð barátta þeirra Jones skyndilega hnífjöfn í skoðanakönnunum. Fyrst eftir að ásakanirnar komu fram sýndu sumar kannanir að demókratinn hefði forskot á repúblikanann, nokkuð sem hefði verið talið óhugsandi aðeins nokkrum vikum áður. Síðustu vikurnar hafa kannanir þó bent til þess að Moore hefði aftur náð forskoti. Hins vegar hafa ólíkar kannanir gefið afar mismunandi niðurstöður. Sumar hafa sýnt Moore, sem hefur að miklu leyti forðast sviðsljósið eftir að ásakanirnar komu fram, með níu stiga forskot en aðrar Jones með allt að tíu stiga forystu. Óvissan er því mikil um hver úrslit kosninganna í dag verða. Hún er talin endurspegla óvissu um hverjir muni mæta á kjörstað í dag. Ásakanirnar gegn Moore gætu leitt til þess að kjósendur repúblikana velji að sitja heima og einnig hvatt kjósendur demókrata til að fjölmenna á kjörstaði. Barack Obama, fyrrverandi forseti, og Joe Biden, varaforseti hans, hafa meðal annars tekið upp skilaboð sem send hafa verið kjósendum í ríkinu til að fá svarta kjósendur til að taka þátt. Þá er óvíst hvaða áhrif yfirlýstur stuðningur Donalds Trump forseta við Moore hefur á kjósendur. Aðrir leiðtogar repúblikana hafa fjarlægt sig framboði Moore og sumir þeirra hafa jafnvel gert að því skóna að þeir myndu reyna að koma í veg fyrir að hann tæki sæti í öldungadeildinni og gætu valdahlutföllin þá breyst enn meira. Stephen Bannon, fyrrverandi aðalráðgjafi Trump forseta, talaði máli Moore á kosningafundi hans í gærkvöldi. Þar sagði hann sérstakan stað í helvíti fyrir repúblikana sem styddu ekki Moore.Vísir/AFP Allt þarf að ganga upp fyrir demókratannTölfræðifréttavefurinn Five Thirty Eight benti nýlega á að Jones væri innan venjulegra skekkjumarka skoðanakannana frá því að hafa sigur. Aftur á móti bendir Nate Silver, ritstjóri vefsins, á að allt þurfi að ganga upp hjá Jones til að hann nái að innbyrða sögulegan sigur. Jones þurfi að treysta á að kjörsóknin verði honum í hagstæð og að svo gott sem allir kjósendur sem sveiflast á milli demókrata og repúblikana greiði honum atkvæði. Gangi það ekki eftir gæti Moore unnið naumlega og jafnvel afgerandi ef hvorugt fellur Jones í vil. Kjörstaðir í Alabama opna kl. 13 og loka á miðnætti að íslenskum tíma. Mikið er undir því ef Jones hefur sigur hafa repúblikanar aðeins eins manns meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings. Kosið verður til hluta öldungadeildarinnar í nóvember á næsta ári.
Bandaríkin Donald Trump MeToo Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira