Einn í bann fyrir að pissa í átt að áhorfendum og annar lamdi nuddarann í klessu Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. október 2017 12:30 Mynd tengist efni fréttar ekki beint. vísir/getty
Það eru áhugaverðir hlutir í gangi í ítölsku D-deildinni þessa dagana eins og má lesa í frétt ESPN FC um tvo leikmenn sem úrskurðaðir hafa verið í fimm leikja bann. Giovanni Liberti, leikmaður Turris, fékk bann fyrir að pissa í átt að stuðningsmönnum Sarnese í 3-3 jafntefli liðanna þegar komið var fram í uppbótartíma. Aganefnd D-deildarinnar segir í skýrslu sinni að hann hafi vissulega pissað í áttina að fólkinu í stúkunni, sýnt óviðeigandi látbragð og um leið berað á sér kynfærin. Turris ætlar að áfrýja úrskurði aganefndarinnar þar sem hann segist ekki hafa gert neitt af þessu og félagið stendur með honum. „Það er vatnsbrunnur nálægt veggnum þar sem leikmaðurinn var. Hann var að drekka úr honum og laga til treyjuna sína sem, samkvæmt reglum, á að vera girt ofan í stuttbuxurnar. Forráðamen Sarnese hafa sagt okkur að leikmaðurinn gerði ekkert af því sem talað er um,“ segir Antonio Colantonio, forseti Turris. Á meðan Turris var að pissa, nú eða fá sér vatn og laga treyjuna sína, var annar leikmaður í veseni sem kostaði hann einnig fimm leikja bann. Francesco Ferrieri, leikmaður Frattese, tók upp á því að berja nuddara liðsins Nardo í klessu. Leikur liðanna var stöðvaður á meðan stuðningsmenn slógust í stúkunni og virtist Ferrieri svo spenntur að fá að taka þátt að hann kýldi, sparkaði í og sló nuddarann.
Ítalski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Tielemans tók vítið með Bruno Enski boltinn Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Fleiri fréttir Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Uppgjörið: FH-Apollon 0-1 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Uppgjörið: Csíkszereda - Breiðablik 0-1 | Blikar áfram í Evrópu Draumurinn að rætast Liverpool fékk nýjan markvörð Allt teymi Heimis framlengir Sjá meira