Erlent

Útlit fyrir mikil átök innan Repúblikanaflokksins

Samúel Karl Ólason skrifar
Mitch McConnel og Stephen Bannon.
Mitch McConnel og Stephen Bannon. Vísir/Getty
Útlit er fyrir mikil átök innan Repúblikanaflokksins á næstunni eða fram að þingkosningum næsta árs. Bandamenn Mitch McConnell, leiðtoga repúblikana á öldungadeild þingsins, hafa svo til gott sem lýst yfir stríði gegn Stephen Bannon, fyrrverandi ráðgjafa Donald Trump, ritstjóra Breitbart og leiðtoga nokkurs konar uppreisnar inna flokksins.

Bannon stefnir að því að koma sem flestum þingmönnum flokksins frá og koma eigin mönnum á þing.

Þetta gerist ofan á deilur og áhyggjur innan flokksins vegna aukins andófs og aukinnar gremju þingmanna með framferði Donald Trump, forseta. Nokkrir öldungadeildarþingmenn hafa gagnrýnt forsetann opinberlega.

Flóttinn byrjaður

Tveir þeirra, Jeff Flake og Bob Corker, hafa lýst því yfir að þeir ætli ekki að bjóða sig fram. Flake er einn af þeim sem Bannon vill koma frá og hann sagðist ekki tilbúinn til að fara í þá kosningabaráttu. Hann gæti ekki komið stoltur frá því, jafnvel þó hann myndi vinna. Báðir hafa nú stigið fram og gagnrýnt Trump harðlega.



Repúblikanar eru með 52-48 forystu á öldungadeildinni og 240 – 194 á fulltrúadeildinni.

Samkvæmt frétt Washington Post hefur Bannon farið víða um á undanförnum vikum og sankað að sér mögulegum frambjóðendum og stuðningsmönnum til að fella sitjandi þingmenn úr sessi. Auðkýfingurinn Robert Mercer hefur varið milljónum dala til stuðnings Bannon og hans fólks.



Sjá einnig: Úr gullsölu í World of Warcraft í Hvíta húsið



Stór kosningasjóður sem styður Mitch McConnell hefur þegar byrjað að berjast gegn frambjóðendum Bannon. Meðal annars hefur sjóðurinn sent frá sér niðrandi yfirlýsingar um minnst tvo frambjóðendur Bannon. Þar að auki hafa þingmenn flokksins sem eru hliðhollir McConnell farið í fjölmiðla og gagnrýna Bannon og frambjóðendur hans.

Fyrrverandi starfsmannastjóri McConnel segir Bannon hafa meiri áhuga á því að fá nafn sitt í fyrirsagnir fjölmiðla en að gera gagn fyrir forsetann. Hann segir aðferðir og hegðun Bannon koma verulega niður á samstarfi Trump og þingmanna flokksins. Báðar hliðar hafa hins vegar passað sig á því að árásir þeirra á hvorn annan komi ekki niður á Trump.

Óttast öfug áhrif

Enn sem komið er hafa árásir Bannon-liða ekki haft mikil áhrif á stöðuna innan flokksins og þá sérstaklega á öldungadeildinni. Politico segir þá þó finna fyrir þrýstingi innan flokksins.



Stuðningsmenn McConnel óttast þó að árásir á Bannon gætu haft öfugar afleiðingar og í raun ýta undir vinsældir hans. Þá óttast þeir einnig að auknar deilur innan flokksins og andóf gegn hefðbundnum stjórnmálum gætu leitt hann lengra til hægri og frá almennum kjósendum.

Til lengri tíma gæti flokkurinn misst forystu sína á deildum þingsins. Þó frekar á öldungadeildinni.


Tengdar fréttir

McCain bregður fæti fyrir flokksbræður sína, aftur

Öldungardeildarþingmaðurinn John McCain segir að hann geti ekki stutt nýjustu tilraun samflokksmanna sinna í Repúblikanaflokknum til þess að ganga frá heilbrigðis- og sjúkratryggingakerfi Bandaríkjanna, sem gengur undir nafninu Obamacare.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×