Innlent

Formenn og oddvitar bregðast við úrslitunum

Þórgnýr Einar Albertsson og Aðalheiður Ámundadóttir skrifa
Ýmsir eru sáttir, aðrir ósáttir. Sumir tala um varnarsigur og aðrir leggjast í naflaskoðun.
Ýmsir eru sáttir, aðrir ósáttir. Sumir tala um varnarsigur og aðrir leggjast í naflaskoðun. Vísir/Ernir
Kosningar eru að baki og úrslitin eru ljós. Átta flokkar af tíu komust á þing og nú taka stjórnarmyndunarviðræður við. Fréttablaðið hafði samband við formenn eða oddvita allra flokka sem buðu sig fram og sóttist eftir viðbrögðum.

Þorvaldur Þorvaldsson, formaður Alþýðufylkingarinnar.Vísir/Ernir
Krakkakosningarnar góður fyrirboði

„Mér sýnist að við höfum ekki bætt við okkur atkvæðum frá því síðast. Það eru svo sem ýmsar ástæður fyrir því. Við bjuggumst kannski ekki við miklu strandhöggi í þingmannafjölda í þessum kosningum. Hins vegar höfum við náð talsverðum árangri,“ segir Þorvaldur Þorvaldsson, formaður Alþýðufylkingarinnar, en flokkurinn fékk 0,2 prósent atkvæða og engan mann kjörinn.

Þorvaldur segir flokkinn hafa fengið talsvert af nýjum félögum og að sjónarmið hans hafi fengið meiri athygli. Þá hafi hann heyrt í mörgum sem hafi til dæmis mælst næst flokknum í kosningaprófum en ekki kosið flokkinn af einhverri ástæðu. Til að mynda þeirri að flokkurinn hafi ekki mælst nærri fimm prósenta þröskuldinum.

„Hluti af þessu er að bæði fjölmiðlar og ýmsir aðilar hafa að því er virðist tekið höndum saman við að gefa bjagaða mynd af okkur og okkar tilvist og þátttöku í kosningunum. Þar ber hæst þessa fáheyrðu ákvörðun RÚV að útiloka okkur frá lokaumræðunni í sjónvarpinu,“ segir Þorvaldur. Hann bætir því við að flokkurinn hafi komið vel út úr krakkakosningunum og það sé góður fyrirboði.

Svandís Svavarsdóttir
Stjórnarmyndun ekki einföld

„Í fyrsta lagi gladdi mig mjög að Andrés Ingi var inni þegar ég vaknaði,“ segir Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, en flokkurinn fékk 16,9 prósent atkvæða og ellefu þingmenn kjörna.

Svandís segir stöðuna eftir kosningarnar ekki einfalda til stjórnarmyndunar. „En sú stjórnarandstaða sem veitti fráfarandi stjórn öflugt aðhald hefur meirihluta í nýju þingi þannig að það hlýtur að vera okkar fyrsta verk að reyna að ná þeim hópi saman,“ segir Svandís og bætir við:

„Svo er náttúrulega rosalegt að sjá þessa miklu karlaslagsíðu hjá þessum nýju flokkum og það er mjög mikið bakslag. Þarna eru að koma inn flokkar sem bera með sér mikinn anda fortíðar og það eru vonbrigði og þeim mun meiri ástæða til að halda anda kvenfrelsis til haga.“​

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.Vísir/Anton Brink
Ánægð með tvöföldunina

„Við erum auðvitað mjög ánægð með að hafa rúmlega tvöfaldað fylgið og vera komin aftur í stöðu sem gerir okkur kleift að byggja betur undir þetta áfram,“ segir Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, en flokkurinn fékk 12,1 prósent atkvæða og sjö menn kjörna.

„Okkur finnst auðvitað sorglegt að þrátt fyrir að vera sá flokkur sem er með þriðja mesta fylgið í prósentum fáum við færri þingmenn en sá flokkur sem er með tæplega tveimur prósentum minna fylgi,“ segir Logi og bætir við:

„Við missum einn mann þarna til Framsóknar. Þetta er sérkennilegt kerfi.“ Logi segir enn fremur að flokkurinn muni beita sér fyrir nýrri stjórnarskrá sem taki á þessum vanda.

Helgi Hrafn Gunnarsson PíratiVísir/þorbjörn
Ógeðslega flókin staða

„Ég er nú bara frekar sáttur, þrátt fyrir allt. Píratar hafa alltaf tapað fylgi í kosningum frá því sem kannanir hafa gefið til kynna þannig að við getum ekki verið annað en sátt,“ segir Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, en flokkurinn fékk 9,2 prósent atkvæða og sex þingmenn.

Hann segir þó stöðuna í stjórnmálunum snúna. „Þetta er ógeðslega flókin staða og ber þess merki að það er mikill óstöðugleiki í stjórnmálum,“ segir Helgi Hrafn og bætir við:

„Það sem skiptir mestu máli núna er að stjórnmálamenn geti fundið ábyrga lausn á því hvernig menn myndi stjórn, án þess að fara í sama gamla farið og trukka bara málum í gegn í risastórum meirihluta. Þessar aðstæður bara neyða alla stjórnmálamenn til að sýna ábyrgð,“ segir Helgi Hrafn.

Þorsteinn Víglundsson, oddviti Viðreisnar í Reykjavík norðurVísir/Ernir
Niðurstöðurnar varnarsigur

„Við unnum ákveðinn varnarsigur. Þetta eru engu að síður vonbrigði. Við höfðum væntingar til þess að ná meiri árangri miðað við kannanir í vikunni fyrir kosningar þannig að þetta var heldur lakari niður­staða en við vorum að vonast eftir,“ segir Þorsteinn Víglundsson, oddviti Viðreisnar í Reykjavík norður, en flokkurinn fékk 6,7 prósent atkvæða og fjóra þingmenn.

Þorsteinn segir að tekist hafi að snúa þungri stöðu við. „Við fórum frá því að vera að þurrkast út af þingi og í það að ná inn fjórum þingmönnum. Það er auðvitað ánægjuefni. Nú er bara verkefnið að byggja ofan á það.“

Var við ramman reip að draga

„Ég er ofsalega stoltur af okkar frammistöðu í þessu. Við höfum kallað þetta varnarsigur sem hann sannarlega er. Við lögðum upp með leikgleði og baráttu og það skein í gegn allan tímann. Í sögulegu samhengi er auðvitað erfitt að mæta svona klofningsframboði. Það tekur á,“ segir Willum Þór Þórsson, oddviti Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi, en flokkurinn fékk 10,7 prósent atkvæða og átta þingmenn.

Willum segist mjög ánægður með að koma aftur inn á þing en hann datt út í síðustu kosningum. „Það var vígi að verja og Eygló Harðardóttir hætti eins og ljóst er. Margt gott fólk fór frá okkur til Miðflokksins og það var við ramman reip að draga. En við náðum upp góðri samstöðu og náðum að verja þetta vígi.“

 

Björt Ólafsdóttir, oddviti Bjartrar framtíðar í KraganumVísir/Laufey Elíasdóttir
Naflaskoðun fram undan

„Það getur vel verið. Ég stend engu að síður með þeirri ákvörðun,“ segir Björt Ólafsdóttir, oddviti Bjartrar framtíðar í Kraganum, þegar hún er spurð hvort kjósendur hafi verið að refsa Bjartri framtíð fyrir að fara í stjórn með Sjálfstæðisflokknum. Flokkurinn fékk 1,2 prósent atkvæða og engan þingmann.

„Það skipti okkur mestu máli að ná fram þeim stefnumálum sem fólk kaus okkur út á. Til þess erum við í stjórnmálum,“ segir Björt og bætir við: „Við getum verið stolt af því að hafa snúið stóriðjustefnunni við á punktinum og friðlýst Þjórsárver. Þrátt fyrir að hafa verið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum tókst okkur það nú samt.“

Björt segir að Björta framtíð sé ekki endilega búin að vera. „En við þurfum náttúrulega að fara í einhverja naflaskoðun, það er alveg ljóst.“

Pálmey Gísladóttir, formaður Dögunar.vísir/Ernir
Halda áfram sinni vinnu

„Þetta var svo sem fyrirséð. Ég hefði viljað sjá meira afgerandi niðurstöðu því það stefnir sýnist mér í stjórnarkreppu. Það er ekki gott,“ segir Pálmey Gísladóttir, formaður Dögunar. Flokkur hennar fékk 0,36 prósent atkvæða í Suðurkjördæmi og bauð fram í því eina kjördæmi. Fékk flokkurinn því engan mann kjörinn á þing en þetta var í þriðja sinn sem Dögun býður fram til Alþingis. 

„Þetta breytir ekki miklu í okkar málum. Við höldum áfram að vinna með okkar málefni,“ segir Pálmey og bætir því við að það hafi verið mjög ánægjulegt að flestir flokkar hafi tekið upp málefni Dögunar og komi til með að fara inn á þing með þau í farteskinu.

Inga auðmjúk og þakklát

„Ég er auðmjúk og ofsalega þakklát fyrir þann mikla stuðning og það traust sem kjósendur hafa sýnt okkur. Það er gríðarleg ábyrgð sem við erum sannarlega tilbúin að axla. Við erum tilbúin til verksins, það er ekkert flóknara en það,“ segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins. Flokkurinn fékk 6,9 prósent atkvæða og fjóra menn kjörna í sínum öðru kosningum.

„Þetta eru átta flokkar sem er sögulegt í okkar stjórnmálasögu. Auðvitað verður eilítið snúnara að ná saman en ég held samt sem áður, miðað við það sem kom fram í kosningabaráttunni, að það ætti að vera greinilegur vilji til þess að fara að vinna og gera góða hluti. Ég held við munum fá góða stjórn sem stendur sig og verður traust í heilt kjörtímabil,“ segir Inga. 

 

Guðlaugur Þór Þórðarson, oddviti oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.Vísir/Vilhelm
Vinstri atlögunni hrundið

„Niðurstaðan er sú að vinstri atlögunni er hrundið. Skoðanakannanir sem sýndu stórsigur vinstri aflanna gengu ekki eftir. Það var hart sótt að okkur Sjálfstæðismönnum, og þá sérstaklega að formanninum, en það tókst að bægja því frá,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík norður. Flokkurinn fékk 25,2 prósent atkvæða og sextán þingmenn.

„Ég er sérstaklega þakklátur öllum þeim hundruðum sjálfboðaliða sem lögðu hönd á plóg í Reykjavík og gerðu það að verkum að við erum enn forystuflokkur í báðum kjördæmum og afskaplega þakklátur fyrir þann stuðning sem ég fékk í Reykjavík norður. Þar héldum við þremur mönnum,“ segir Guðlaugur.

Miðflokksmenn í hæstu hæðum

„Við erum í miklu stuði. Þetta er mjög skemmtilegt,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, oddviti Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi, en flokkurinn fékk 10,8 prósent atkvæða og sjö menn kjörna í sínum fyrstu kosningum.

„Við vissum eiginlega ekki við hverju við áttum að búast í ljósi þess að við vorum að gera þetta allt á einhverjum þremur vikum. Fyrsti sigurinn var að ná að bjóða fram, annar sigurinn var að sjá að við myndum ná yfir fimm prósentin og allt umfram það var bara frábært,“ segir Gunnar Bragi.

Gunnar Bragi bætir því við að flokksmenn séu í hæstu hæðum. Aðspurður um nýtt þing segir hann: „Mér líst alltaf vel á Alþingi, ég held að menn muni reyna að tala saman um sterka ríkisstjórn og einhenda sér í verkefni fyrir samfélagið. Við erum að sjálfsögðu tilbúin í ríkisstjórn.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×