Gulleggið hefur nú hjálpað frumkvöðlum í heilan áratug Stefán Þór Hjartarson skrifar 21. september 2017 10:15 Edda Konráðsdóttir er verkefnastjóri Icelandic Startups og stjórnandi Gulleggsins. Vísir/Vilhelm „
Keppnin átti 10 ára afmæli á þessu ári og 2.300 viðskiptahugmyndir hafa farið í gegnum keppnina frá upphafi. Við gerðum könnun meðal þessara hundrað sem hafa verið í tíu efstu sætunum og það kom í ljós að 71% þeirra sem lentu í efstu tíu sætunum stofnuðu fyrirtæki í kjölfar þátttöku og 76% fyrirtækjanna eru starfandi enn í dag,“ segir Edda Konráðsdóttir, verkefnastjóri hjá Icelandic Startups þar sem hún stýrir Gullegginu. Gulleggið er frumkvöðlakeppni sem allir geta tekið þátt í. Keppnin er góður vettvangur frumkvöðla til þess að koma hugmyndum sínum á framfæri og gera úr þeim áætlanir sem og fyrsta skrefið að því að stofna fyrirtæki. Gullegginu er stýrt af Icelandic Startups sem hefur fóstrað frumkvöðla á Íslandi síðasta áratuginn. Félagið er einkarekið og nýtur stuðnings atvinnulífsins til að bjóða frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum þjónustu án endurgjalds.Eru skilyrði fyrir því að sækja um? „Það eru engin skilyrði – allir sem sækja um komast inn í keppnina. Það kostar ekki neitt að skrá sig og senda inn viðskiptaáætlun. Við bjóðum upp á þrjár vinnusmiðjur keppninni. Þar fara allir inn og móta viðskiptaáætlunina sem þeir skila svo inn í keppnina. Það er líka hægt að skrá sig án hugmyndar, sitja vinnusmiðjurnar og eiga kost á að komast inn í annað teymi, kynnast nýju fólki og vinna að viðskiptahugmynd með einhverjum öðrum – þetta er eitthvað sem við prufuðum fyrir nokkrum árum vegna þess að við vorum að fá svo mikið af fyrirspurnum frá fólki sem hafði áhuga en var kannski ekki með réttu hugmyndina og vildi nýta sér þessar vinnusmiðjur. Á vinnusmiðjunum fáum við inn sérfræðinga sem tala um allt sem viðkemur því að stofna fyrirtæki ásamt mentorum og reyndum frumkvöðlum sem ganga á milli og hjálpa öllum.“Hvernig eru bestu hugmyndirnar svo valdar? „Það er hundrað manna rýnihópur sem les yfir allar áætlanirnar og velur 10 bestu hugmyndirnar. Þessar topp 10 hugmyndir fara á eina vinnusmiðju saman. Svo erum við með tvö opin kynningarkvöld, í ár verða þau annars vegar í Nova og svo í Marel. Þá munu þessi 10 efstu teymi kynna hugmyndir sínar. Og svo er lokadagurinn okkar 28. október. Þann morgun eru teymin með lokakynningar, fjárfestakynningar, fyrir dómnefnd og sem velur þar fyrsta, annað og þriðja sætið.“Hvað er í boði fyrir sigurvegarana? „Fyrsta sætið fær milljón, annað sætið hálfa milljón og þriðja sætið 300 þúsund. Ofan á það er fullt af aukaverðlaunum og fríum ráðgjafartímum frá samstarfsaðilunum okkar – stærstu bakhjarlarnir eru Landsbankinn, KPMG, Nova, Advel Lögmenn, Marel á Íslandi og Alcoa. Samhliða keppninni er Val fólksins sem fer fram á netinu og það eru önnur verðlaun sem eru veitt á lokadeginum.“ Þess má geta að Gulleggið hefur unnið að því markvisst síðustu ár að hækka hlutfall kvenna í keppninni og hefur sú vinna skilað því að hlutfallið var næstum jafnt síðast. Nú fer hver að verða síðastur að sækja um en opið er fyrir umsóknir þangað til klukkan fjögur í dag.
Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Lífið samstarf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Lífið samstarf Fleiri fréttir Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Sjá meira