Valinn í U-21 lið Íslands en spilaði síðast með U-19 liði Dana Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. ágúst 2017 09:30 Mikael í leik með Midtjylland. Vísir/Getty
Eyjólfur Sverrisson hefur tilkynnt hvaða leikmenn hafa verið valdir í U-21 lið Íslands sem mætir Albaníu í undankeppni EM 2019 í byrjun næsta mánaðar. Í þeim hópi er Mikael Neville Anderson, nítján ára Íslendingur sem er búsettur í Danmörku og spilar með Midtjylland. Hann á leiki að baki með U-17 liði Íslands. Mikael er einnig með danskan ríkisborgararétt en hann flutti utan ellefu ára gamall. Hann spilaði með U-19 liði Dana fyrr á þessu ári en hann er gjaldgengur í bæði landslið þar til að hann spilar sinn fyrsta A-landsleik. Í viðtali við Fótbolta.net í fyrra sagðist hann opinn fyrir því að spila með báðum landsliðum en að framtíðin myndi leiða það í ljós. Mikael hefur ekki spilað með Mitdjylland á núverandi tímabili í dönsku úrvalsdeildinni en hann hefur á ferlinum komið við sögu í tveimur leikjum í deildinni, í bæði skiptin sem varamaður. Hann á íslenska móður en faðir hans er frá Jamaíku. Hópinn má sjá á heimasíðu KSÍ en meðal leikmanna sem voru valdir í hóppinn eru Albert Guðmundsson, leikmaður PSV, Jón Dagur Þorsteinsson hjá Fulham og Óttar Magnús Karlsson, sem er nú á mála hjá Molde.Strákarnir sem valdir voru í hópinn.KSÍ
Íslenski boltinn Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Sjá meira