Erlent

Engar vísbendingar um svik í kosningunum í Kenía

Kjartan Kjartansson skrifar
Óeirðir hafa blossað upp í Kenía eftir forsetakosningarnar þar á þriðjudag.
Óeirðir hafa blossað upp í Kenía eftir forsetakosningarnar þar á þriðjudag. Vísir/AFP
Evrópskir kosningaeftirlitsmenn segjast ekki hafa séð neinar vísbendingar um að niðurstöðum forsetakosninganna í Kenía hafi verið hagrætt eins og frambjóðandi stjórnarandstöðunnar fullyrti í gær.

Yfirmaður kjörstjórnar Kenía hafnaði fullyrðingum Rail Odinga, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, um að tölvuþrjótar hefðu breytt talningu atkvæða og gefið Uhuru Kenyatta forseta forskot í gær. Kenyatta hafði nokkuð öruggan sigur í kosningunum.

Mótmæli brutust út í gær í höfuðvígum stjórnarandstöðunnar í höfuðborginni Naíróbí og Kisumum í vesturhluta landsins. Að sögn Reuters-fréttastofunnar skutu lögreglumenn að minnsta kosti þrjá mótmælendur til bana og mótmælendur bönuðu þeim fjórða.

Marietje Schaake, aðalkosningaeftirlitsmaður Evrópusambandsins í Kenía, segir engin merki um miðstýrða eða staðbundna hagræðingu á kosningunum. Lokaskýrsla hennar muni fara yfir talningarferlið í kosningunum, að sögn Reuters.

Deilurnar nú vekja upp slæmar minningar hjá Keníamönnum en 1.100 mannst létust í óöld eftir umdeildar kosningar árið 2007 og hundruð þúsunda þurftu að flýja heimili sin.


Tengdar fréttir

Mótmæli eftir ásakanir um kosningasvindl

Mótmæli og óeirðir brutust út í Kenía í dag eftir að leiðtogi stjórn­ar­and­stöðunn­ar sagði að átt hefði verið við niðurstöður forsetakosninganna þar í landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×