Lífið

Kúkur á móti bragði við Hornbjargsvita

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hornbjargsviti á Hornströndum þar sem einn af betri hrekkjum síðari tíma var framkvæmdur fyrir nokkrum árum.
Hornbjargsviti á Hornströndum þar sem einn af betri hrekkjum síðari tíma var framkvæmdur fyrir nokkrum árum. Vísir/Gudmundur Þ. Egilsson
Fátt ef nokkuð sameinar íslensku þjóðina eins og útlendingur sem kúkar. Svo segir sjónvarpsmaðurinn Helgi Seljan á Twitter í gær en hann er einn fjölmargra sem deilt hafa mynd af ferðamanni sem gekk örna sinna í óþökk bónda í Fljótshlíð í gær.

Ferðamaðurinn skildi kúkinn eftir á landi Þorkels Daníels Eiríkssonar og gaf lítið fyrir athugsemdir um að þetta væri ógeðslegt. Enginn vildi fá fólk til sín skítandi upp við húsið. Maðurinn svaraði engu, nema með glotti og spurningunni: „So?“

Margir eru hneykslaðir á framkomu ferðamannsins en nokkuð reglulega hefur verið fjallað um ferðamenn og „númer tvö“ í fjölmiðlum undanfarin ár. Ferðamenn hafa gengið örna sinna við leiði merkra Íslendinga á Þingvöllumá gangstétt á Húsavík og í miðbæ Reykjavíkur svo dæmi séu tekin.

Sumir hafa verið svo þreyttir á vandanum að þeir hafa búið til skilti. Aðrir hafa bent á að vandamálið sé fyrst og fremst stjórnvöldum og aðilum í ferðamálabransanum um að kenna, þ.e. mikill skortur sé á salernum.

Ferðamaðurinn var staddur rétt fyrir utan heimili Þorkells þegar hann hafði saurlát.Þorkell Daníel Eiríksson
Ævar Sigdórsson, sem um árabil sinnti gestum og gangandi sem vitavörður yfir sumartímann í Hornbjargsvita á Hornströndum við góðan orðstír, lagði orð í belg í athugasemdakerfinu við frétt Vísis af ferðamanninum kúkandi í gær. Rifjaði hann upp sögu af ferðamanni sem fékk að að bragða á sínu eigin meðali.

„Ég lenti í svona máli fyrir nokkrum árum í Hornbjargsvita. Það var einn sem skeit við göngustíginn heim að húsinu. Ég þóttist ekkert taka eftir þessu, en þegar kauði kom inn í hús, laumaðist ég með plastpoka og þreif upp eftir hann. Því næst stakk ég plastpokanum djúpt ofan í bakpokann hans án þess að hann sæi og kvaddi hann glottandi,“ segir Ævar.

Óhætt er að segja að sagan hafi slegið í gegn enda hafa yfir hundrað manns „lækað“ frásögnina.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×