Meinað að ganga í staðfesta samvist Guðsteinn Bjarnason skrifar 22. febrúar 2017 07:00 Rebecca Steinfeld og Charles Keidan fyrir utan áfrýjunardómstól í London. vísir/epa
Breska parið Rebecca Steinfeld og Charles Keidan hafa tapað máli fyrir breskum áfrýjunardómstól, sem hafnaði því að þau mættu skrá sig í borgaralega samvist. Þau eru gagnkynhneigð en bresku lögin um borgaraleg samvist, eða staðfest samvist eins og það hét hér á landi, var hugsuð handa samkynhneigðum pörum. Áfrýjunardómstóllinn segir að lögin geri ekki ráð fyrir því að gagnkynhneigð pör nýti sér þennan möguleika, en reyndar geti þingið breytt þessum lögum. Nú þegar liggi fyrir breska þjóðþinginu frumvarp í þá veru. Dómstóllinn viðurkennir í úrskurði sínum, að hugsanlega geti þetta fyrirkomulag talist mannréttindabrot gagnvart þeim Steinfeld og Keidan sem og öðrum gagnkynhneigðum pörum, sem kynnu að vilja staðfesta samvist sína á þessum forsendum. Hins vegar eigi dómstólar ekki að grípa fram fyrir hendurnar á stjórnvöldum, að minnsta kosti ekki á þessu stigi málsins. Þau Steinfeld og Keidan eru staðráðin í að áfrýja máli sínu til Hæstaréttar. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjá meira