Árásin við Louvre: Árásarmaðurinn 29 ára Egypti atli ísleifsson skrifar 3. febrúar 2017 22:00 Maðurinn lét til skarar skríða í stigagangi við innganginn að Louvre-safninu. Vísir/afp
Árásarmaðurinn sem særði franskan hermann við Louvre-safnið í París í morgun er 29 ára Egypti. Franski ríkissaksóknarinn Francois Molins greindi frá þessu á fréttamannafundi nú undir kvöld. Molins greindi frá því að maðurinn, sem var vopnaður tveimur sveðjum, hafi komið til Frakklands frá Dúbai þann 26. janúar síðastliðinn. Hann var með vegabréfsáritun sem heimilaði honum að ferðast til Frakklands sem ferðamaður og dvelja þar í mánuð. Maðurinn keypti sveðjurnar tvær sem hann notaði fyrir 600 evrur í vopnaverslun við Bastillutorg síðasta laugardag. Í frétt BBC segir að talið sé að hann hafi dvalið í íbúð í áttunda hverfi borgarinnar, en enn á eftir að bera fullkomin kennsl á manninum. Maðurinn lét til skarar skríða í stigagangi við innganginn að Louvre-safninu. Hópur hermanna var þar á ferli, en manninum tókst að særa einn hermann áður en hann var skotinn fimm skotum. Árásarmaðurinn var fluttur alvarlega særður á sjúkrahús. Bernard Cazeneuve, forsætisráðherra Frakklands, segir að árásin hafi verið í ætt við hryðjuverk. Óvíst er hvað maðurinn ætlaði sér en hann var með tvo bakpoka með sér. Í hvorugum þeirra fundust sprengiefni. Frönsk yfirvöld vinna nú að því að komast að því hvort maðurinn hafi verið einn að verki eða fylgt fyrirmælum frá öðrum aðila.
Tengdar fréttir Sveðjuárásin við Louvre-safnið: „Við sáum dauðann koma“ Maðurinn er sagður hafa verið vopnaður sveðju og látið til skarar skríða í stigagangi við innganginn að Louvre-safninu. 3. febrúar 2017 14:51 Louvre-safninu lokað eftir hnífaárás Lögregla er með mikinn viðbúnað á svæðinu eftir að ráðist var á hermann í grennd við safnið. 3. febrúar 2017 09:51 Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira
Sveðjuárásin við Louvre-safnið: „Við sáum dauðann koma“ Maðurinn er sagður hafa verið vopnaður sveðju og látið til skarar skríða í stigagangi við innganginn að Louvre-safninu. 3. febrúar 2017 14:51
Louvre-safninu lokað eftir hnífaárás Lögregla er með mikinn viðbúnað á svæðinu eftir að ráðist var á hermann í grennd við safnið. 3. febrúar 2017 09:51