MoMA mótmælir tilskipun Trumps með listaverkasýningu Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 4. febrúar 2017 14:06 Hér má sjá gesti og gangandi virða fyrir sér listaverk Charles Hossein Zenderoudi. Vísir/AFP
Nútímalistasafnið MoMA í New York hefur brugðist við umdeildri tilskipun Trumps er varðar komu fólks frá sjö löndum í Mið-Austurlöndum og Afríku til Bandaríkjanna, með því að sýna listaverk eftir listamenn frá þeim sjö löndum sem tilskipun Trump tekur til. Huffington Post greinir frá. Um er að ræða sjö listaverk eftir listamennina Ibrahim el-Salahi frá Súdan, Parviz Tanavoli frá Íran, Tala Madani frá Íran, Zaha Hadid frá Írak, Charles Hossein Zenderoudi frá Íran, Shirana Shahbazi frá Íran og Marcos Grigorian frá Rússlandi og Persíu. Christophe Cherix, safnvörður hjá MoMa, segir þetta vera skýr viðbrögð við því sem sé að gerast í valdatíð Trumps og að safnið sé að sýna samstöðu í verki. ,,Síðan að safnið var stofnað hefur það ávallt lagt upp með að vera einskonar öruggt skjól fyrir listamenn hvaðan æva að. Margir innflytjendur hafa komið til New York og unnið að list sinni hér og söfnin lögðu þeim lið. Ferðafrelsi er mikilvægt fyrir listamenn, fræðimenn og sagnfræðinga ,“ segir Cherix. Hann leggur áherslu á að listaverkin séu öll í eigu safnsins og að listamennirnir séu mismunandi líkt og þeir séu margir. Þannig sé um að ræða listamenn sem leggi stund á listmálun, höggmyndalist, arkitektúr og ljósmyndun. Líklegt þykir að safnið muni hengja upp fleiri verk.
Mest lesið Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Innlent „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Innlent Fleiri fréttir Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Prinsinn bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Sjá meira