Fékk gröfu yfir sig og festist í vatni en tókst að halda lífi á ótrúlegan hátt atli ísleifsson skrifar 9. febrúar 2017 10:13 Slökkvilið dældi vatni og drullu áður en þeir fóru ofan í til að bjarga Miller.
Ástralskur maður komst lífs af á ótrúlegan hátt eftir að hafa fengið gröfu yfir sig og þannig fests í vatni á afskekktu búi sínu. Maðurinn náði að halda nefinu einu ofan við vatnsborðið í nokkra klukkutíma áður en hann fannst og það tókst að bjarga honum úr klípunni. Í frétt BBC segir að hinn 45 ára Daniel Miller hafi verið að aka gröfunni á búinu sem er um 300 kílómetrum norður af Sydney. Þegar kantur stíflunnar þar sem hann var að störfum brast festist Miller í vatni eftir að hafa fengið þriggja tonna gröfuna yfir sig. Miller kveðst hafa notast við jógastellingu – með því að fetta bakið og ná þannig að halda hluta andlitsins fyrir otan vatnsborðið – allt þar til nágranni í 500 metra fjarlægð heyrði öskur hans. „Ég var fastur og varð að halda höfðinu fyrir ofan vatn með því að notast við hendurnar. Ég býst við að þetta hafi verið kóbrastellingin,“ sagði Miller í samtali við Sydney's Daily Telegraph. Segir hann að jóga og viljinn til lífs hafi þannig bjargað lífi hans.Björgunarlið segir að tvo tíma hafi tekið að bjarga honum úr vatninu, en eiginkona Miller sagði á Facebook að hann hafi verið þar í fimm tíma. Miller segir að allan tímann hafi hann hugsað um að hann yrði að komast aftur til eiginkonu sinnar og tveggja ungra barna þeirra. Slökkvilið dældi vatni og drullu áður en þeir gátu farið ofan í til að ná Miller aftur á þurrt land. Hann var svo fluttur á sjúkrahús í þyrlu, kaldur og með minniháttar bakmeiðsli. Sjá má viðtal við Miller að neðan.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira