Danir fyrstir til að skipa sendiherra gagnvart tæknirisum heimsins atli ísleifsson skrifar 27. janúar 2017 08:35 Anders Samuelsen, utanríkisráðherra Danmerkur. Vísir/AFP
Danmörk verður fyrsta ríki heims til að skipa sérstakan sendiherra gagnvart tæknirisum heimsins. Sendiherranum er ætlað að hlúa að samskiptum danska ríkisins og fyrirtækja líkt og Google, Apple, Microsoft og Facebook. Í frétt Politiken segir að ástæða hinnar nýju stöðu sé að áhrif fyrirtækjanna séu orðin meiri – bæði þegar kemur að efnahag og með hvaða hætti þau hafa áhrif á daglegt líf borgaranna – en mörg þeirra landa þar sem Danmörk starfrækir sérstök, hefðbundin sendiráð. „Segja má að þessi fyrirtæki séu eins konar nýjar þjóðir og við þurfum að vera í tengslum við þau,“ segir Anders Samuelsen, utanríkisráðherra Danmerkur. Politiken segir frá því að bæði Apple og Google séu næstum nægilega stór til að ganga í G20-hópinn ef þau væru þjóðríki. „Við verðum að sjálfsögðu áfram að hugsa um tengsl okkar við önnur ríki. En við verðum einnig að vera með náin tengsl við þau fyrirtæki sem hafa mest áhrif á okkur,“ segir Samuelsen.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira