Kolbeinn bauðst til að spila frítt fyrir Galatasaray Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. janúar 2017 12:00 Kolbeinn á flugvellinum í Istanbúl en það kom aldrei til þess að hann myndi spila með Galatasaray. vísir
Kolbeinn Sigþórsson bauðst til að spila frítt með Galatasaray til loka tímabilsins þegar ljóst varð að félagið myndi rifta samningi hans við félagið. Þetta sagði Kolbeinn í viðtali sem birtist í Fréttablaðinu og á Vísi í morgun og má lesa í heild sinni hér. Sjá einnig: Langt í frá týndur en mjög áhyggjufullur yfir ferlinum Eins og Kolbeinn lýsir í viðtalinu þurfti hann að fara í liðþófaaðgerð í byrjun september, skömmu eftir að hann hafði komið sem lánsmaður til Galtasaray frá Nantes, félagi hans í Frakklandi. Batinn var því miður ekki nógu góður eftir aðgerðina og sér reyndar ekki enn fyrir endann á því ferli. Líklegt er að Kolbeinn þurfi að fara í aðra aðgerð, sem er alvarlegt mál og setur feril hans í óvissu. Galatasaray átti hins vegar engra annarra kosta völ en að rifta samningnum við Kolbein, að hans sögn. „Þeir gátu það ekki, vegna einhverra reglna frá UEFA sem þeir þurfa að hlýta. Það er auðvitað mikil pressa á félagi eins og Galatasaray að ná árangri,“ sagði Kolbeinn. Kolbeinn ber engan kala til Galatasaray, þvert á móti. „Ég skildi þeirra ákvörðun mjög vel. Þetta er frábær klúbbur og afar vel komið fram við mig. Mér fannst ég vera á besta mögulega staðnum fyrir mig,“ segir hann. „Ég bauðst til að spila frítt með liðinu eftir áramót. Ég var það viljugur að vera áfram. En þeir gátu ekki fengið annan leikmann inn nema með því að losa mig. Það var því ekki hægt.“ Í viðtalinu greinir Kolbeinn ítarlega frá baráttu sinni við meiðsli og stöðu sína hjá Nantes, franska félaginu sem hann er samningsbundinn.
Fótbolti Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Sjá meira