Uppreisnarmenn í Sýrlandi samþykkja að taka þátt í friðarviðræðum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. janúar 2017 23:53 Talið er að uppreisnarhóparnir muni krefjast þess að Assad forseti muni láta af völdum sínum. Vísir/EPA
Sýrlenskir uppreisnarhópar hafa samþykkt að taka þátt í friðarviðræðum sem haldnar verða undir forystu Tyrklands og Rússlands í Astana, höfuðborg Kasakstan í næstu viku. The Guardian greinir frá.Vopnahlé hefur ríkt í landinu síðan í lok desember en leiðtogar uppreisnarhópanna höfðu áður hótað því að taka ekki þátt í friðarviðræðunum þar sem þeir töldu stjórnarliða brjóta gegn skilmálum vopnahlésins. Vonast er til að friðarviðræðurnar muni leiða til lykta borgarastyrjöldina í Sýrlandi en að viðræðunum munu koma uppreisnarhópar, stjórnarliðar, Rússar, Tyrkir og Íranar. Þá hefur Bandaríkjamönnum einnig verið boðið til viðræðnanna. Talið er að friðarviðræðurnar muni hefjast mánudaginn 23. janúar næstkomandi. Forystumenn uppreisnarhópa eru vongóðir um að viðræðurnar geti bundið enda á borgarastyrjöldina. „Allir uppreisnarhóparnir ætla til Astana. Allir eru sammála um mikilvægi þess að enda blóðbaðið“ segir Mohammed Alloush sem fara mun fyrir nefnd leiðtoga uppreisnarmanna í friðarviðræðunum. Engin skilyrði hafa verið sett fram af neinum aðila fyrir viðræðunum en þó er talið að uppreisnarmenn muni krefjast þess að Assad, forseti Sýrlands fari frá völdum ef þeir eigi að samþykkja endanlega að fella niður vopn sín.
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Sjá meira