Tólfan mætt til Zürich: Eiginlega súrrealískt Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. janúar 2017 13:00 Tólfan vakti verðskuldaða athygli á EM í Frakklandi. Benjamín er hér fremstur meðal jafningja, klæddur í hvítt. Fréttablaðið/Vilhelm
Stuðningsmenn íslenska landsliðsins geta í kvöld unnið til verðlauna sem stuðningsmenn ársins hjá Alþjóðaknattspyrnusambandinu, FIFA. Stuðningsmenn Íslands, með Tólfuna fremsta í flokki, eru tilnefndir ásamt tveimur öðrum hópum. Annars vegar stuðningsmönnum Liverpool og Dortmund sem sameinuðust í söng á You'll Never Walk Alone fyrir leik liðanna í Evrópukeppni UEFA í haust. Hins vegar stuðningsmenn ADO Den Haag í Hollandi sem köstuðu tuskudýrum til stuðningsmanna Feyenoord en þar voru börn af barnaspítala í Rotterdam sem voru gestir síðarnefnda félagsins á leiknum. Víkingaklappið sem var einkennandi fyrir stuðningsmenn Íslands á EM í sumar er löngu orðið heimsfrægt og var tekið upp af stuðningsmönnum annarra liða á mótinu. Styrmir Gíslason og Benjamín Árni Hallbjörnsson eru í Zürich fyrir hönd Tólfunnar og stuðningsmanna Íslands og segja þeir í samtali við mbl.is að það hafi farið afar vel um þá ytra. „Þetta er eiginlega bara súrrealískt. Hérna eru Puyol, Maradona, Batistuta og ég gæti talið endalaust upp. Við erum á hótelinu með þeim og við borðuðum saman og drukkum hvítvín í gærkvöldi. Þetta er ekki alveg það sem manni datt í hug þegar Tólfan var stofnuð árið 2007, að við myndum enda hérna,“ sagði Styrmir meðal annars í samtali við mbl.is.
Íslenski boltinn Mest lesið Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Enski boltinn Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Körfubolti Alonso tekur við Real fyrir HM félagsliða Fótbolti Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Körfubolti Þróttur skoraði sex og flaug áfram Íslenski boltinn Íslendingaliðið sló óvænt stórlið Bodø/Glimt úr bikarnum Fótbolti Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Körfubolti Valur marði Fram í framlengingu Íslenski boltinn Tindastóll, FH og HK áfram í bikarnum Íslenski boltinn Leiður að heyra púað á vin sinn: „Getur ekki sagt fólki hvernig því á að líða“ Enski boltinn Fleiri fréttir Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Alonso tekur við Real fyrir HM félagsliða Þróttur skoraði sex og flaug áfram Valur marði Fram í framlengingu Íslendingaliðið sló óvænt stórlið Bodø/Glimt úr bikarnum Tindastóll, FH og HK áfram í bikarnum Leiður að heyra púað á vin sinn: „Getur ekki sagt fólki hvernig því á að líða“ Mikael Egill spilaði allan leikinn þegar Venezia komst upp úr fallsæti Hafa notað sama byrjunarliðið í öllum leikjunum Ancelotti tekur við Brasilíu Fjölskylda Glódísar sá hana taka við meistaraskildinum Neyddust til þess að sofa á æfingasvæðinu Áttar sig ekki á Stjörnunni: „Bíð bara eftir því að Garpur poppi þarna upp“ Hafa unnið FH tólf sinnum í röð Beckham reiður: Sýnið smá virðingu Hrósuðu Alexander: „Varð ekkert var við það að þarna væri fimmtán ára strákur inni á vellinum“ Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Sjáðu skrípamörkin í Víkinni og öll mörkin úr sjöttu umferðinni Þeir bestu: Fylgt úr hlaði Eiður Smári missir hvert metið á fætur öðru til ungra KR-inga Sveindís Jane slapp við síðasta sætið á íslenska listanum Halla forseti, Sveppi og Gummi Ben í nýju tónlistarmyndbandi fyrir EM Eigandi Nott. Forest reifst við Nuno þjálfara inn á vellinum Heimir Guðjónsson: Ef það var einhvern tíma lag að vinna Víking þá var það núna „Þurftum að grafa djúpt“ Uppgjörið: Víkingur - FH 3-1 | Víkingar aftur á toppinn eftir hauskúpuleik Rosenörn „Ef við mætum svona í leiki munum við fá fullt af stigum” Pirruð Man City stjarna: „Þeir reyndu ekki einu sinni að vinna“ Uppgjörið: KA - Breiðablik 0-1 | Blikar sluppu með skrekkinn í blálokin Hilmir Rafn innsiglaði sigurinn hjá toppliðinu Sjá meira
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð