Guðmundur Andri kynntur sem leikmaður Start í beinni á Facebook | Myndband 8. desember 2017 10:51 Guðmundur Andri Tryggvason í beinni. mynd/skjáskot
Guðmundur Andri Tryggvason, 18 ára gamall leikmaður KR og U19 ára landslið Íslands í fótbolta, er genginn í raðir norska úrvalsdeildarliðsins Start. Þetta var tilkynnt í beinni á Facebook-síðu liðsins sem vann sér inn sæti í úrvalsdeildinni með því að hafna í öðru sæti 1. deildarinnar í ár. Guðmundur Andri er einn efnilegasti leikmaður landsins en hann kom við sögu í þrettán leikjum með KR á síðustu leiktíð í Pepsi-deildinni og skoraði eitt mark. Hann fetar nú í fótspor föður síns, Tryggva Guðmundssonar, sem spilaði í Noregi við góðan orðstír um árabil áður en hann kom heim og varð markahæsti leikmaður í sögu efstu deildar. Guðmundur Andri var í U16 ára landsliði Íslands sem vann brons á Ólympíuleikum æskunnar fyrir þremur árum en í heildina á hann 25 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands. Kristján Flóki Finnbogason, fyrrverandi framherji FH, gekk í raðir Start um mitt sumar og verður samherji Guðmundar Andra en Guðmundur Kristjánsson yfirgaf herbúðir liðsins og samdi við FH eftir að tímabilinu lauk í Noregi. Hér að neðan má sjá útsendinguna þar sem Guðmundur Andri var kynntur til leiks.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Fleiri fréttir Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Sjá meira