Einstakar Fokk ofbeldi húfur Stefán Árni Pálsson skrifar 22. febrúar 2017 15:15 myndir/saga sig
UN Women á Íslandi í samstarfi við Vodafone efnir til uppboðs á þremur Fokk ofbeldi húfum með tvisti. Fokk ofbeldi húfan hefur selst eins og heitar lummur undanfarnar tvær vikur og nú er komið að lokahnykk átaksins. UN Women á Íslandi brá á það ráð að fá Ernu Einarsdóttur yfirhönnuð Geysis, Hildi Yeoman fatahönnuð og myndlistarkonuna Elínu Hansdóttur til að hanna sérstaka útgáfu af húfunni og gerði hver og ein sína útgáfu af sinni alkunnu snilld. Öllum er velkomið að taka þátt í uppboði UN Women á Íslandi og Vodafone og sömuleiðis eru allir hjartanlega velkomnir á gleðina en ærið tilefni er til að fagna frábærum viðtökum almennings við Fokk ofbeldi átakinu sem gengið hefur vonum framar. Fjórir lukkunnar pamfílar geta einnig unnið Fokk ofbeldi pakka, myndatöku hjá Sögu Sig, Bluetooth hátalara og Vodafone Platinum 7 snjallsíma. Hægt er að skrá sig í happdrættið hér. Uppboðinu stýrir enginn annar en Þorsteinn Guðmundsson. Þá mun Friðrik Dór einnig taka nokkur lög. Laufléttar veitingar verða í boði. Uppboðið fer fram í verslun Vodafone Kringlunni, fimmtudagskvöldið 23. febrúar kl.19.45.
Tíska og hönnun Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira