Grikkir bíða ákvörðunar evruríkjanna um framhald aðstoðar Guðsteinn Bjarnason skrifar 20. febrúar 2017 06:00 Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, neitar frekari niðurskurði nema fá skuldaniðurfellingar. vísir/epa
Í dag hittast í Brussel fjármálaráðherrar evruríkjanna til að ræða framhald á fjárhagsaðstoð við Grikkland. Grikkir þurfa nauðsynlega á því að halda að fá fé í ríkissjóðinn til að geta borgað upp í skuldir, sem nú nema nærri 180 prósentum af þjóðarframleiðslunni. Alexis Tsipras forsætisráðherra neitar að skera meira niður í ríkisrekstrinum nema einhverju af skuldunum verði aflétt. Christine Lagarde, yfirmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, tekur undir kröfur Grikkja um að þeir fái einhverjar skuldaniðurfellingar. Hún hefur sagt að sjóðurinn geti varla tekið þátt í frekari efnahagsaðstoð við Grikkland nema þeir fái niðurfelldar skuldir. Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, útilokar hins vegar alfarið alla skuldaeftirgjöf. Hann stendur fast á því að Grikkir eigi að ráða við vandann ef þeir haldi áfram á þeirri braut niðurskurðar sem þeir hafa verið á undanfarin ár. „Ef Grikkir gera nauðsynlegar efnahagsumbætur þá lenda þeir ekki í vanda. En ef þeir gera það ekki, þá verða þeir í vanda staddir,“ sagði Schäuble í sjónvarpsviðtali í gær. Grikkir hafa frá árinu 2010 þrisvar sinnum fengið efnahagsaðstoð frá evruríkjunum og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Síðast var það samþykkt í ágúst árið 2015 og hafa þeir fengið hluta þeirrar aðstoðar greiddan.Næsta greiðsla verður í maí fallist þeir á frekari efnahagsumbætur.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Fleiri fréttir Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Sjá meira