Nærri þrjátíu Egyptar féllu í árás Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 27. maí 2017 07:00 Lögregla stóð vörð um spítalann sem hinir særðu lágu á. Nordicphotos/AFP
Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á hryðjuverkaárás á hóp kristinna Egypta, úr koptísku rétttrúnaðarkirkjunni, sem framin var í gær. Alls féllu 28 í árásinni og 25 særðust. Koptarnir voru í rútu á leið til musteris heilags Samúels suður af Kaíró þegar skotið var á þá. Hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki hafa undanfarna mánuði ráðist ítrekað á kopta í Egyptalandi og heitið því að halda slíkum árásum áfram. Samtökin hafa þó ekki lýst yfir ábyrgð sinni á árás gærdagsins. Í síðasta mánuði var þriggja mánaða neyðarástandi lýst yfir í Egyptalandi vegna árása ISIS á kopta. Egypskir fjölmiðlar greina frá því að um tíu byssumenn, klæddir herbúningum, hafi ráðist á rútuna sem var hluti af bílalest. Skutu þeir á rútuna með hríðskotarifflum áður en þeir flúðu af vettvangi á þremur bifreiðum.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Innlent Fleiri fréttir Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Sjá meira