Mótmælendur í Kaupmannahöfn köstuðu grjóti í lögreglu Atli Ísleifsson skrifar 1. mars 2017 23:02 Frá aðgerðum lögreglu í tengslum við mótmælin í Kaupmannahöfn árið 2007. Vísir/EPA
Um þúsund manns mótmæltu á götum Kaupmannahafnar í kvöld í tilefni af því að tíu ár eru liðin frá því að Ungdomshuset á Nørrebro var rifið. Grímuklæddir mótmælendur köstuðu margir grjóti og öðru lauslegu að ílögreglu og brutu rúður í verslunum við Nørrebrogade. Lögregla þurfti í nokkrum tilfellum að beita bareflum gegn mótmælendum sem margir voru með svarta borða þar sem á stóð „Ekkert gleymt – ekkert fyrirgefið“.Danskir fjölmiðlar segja að mótmælin hafi byrjað síðdegis á Vor Frue Plads og héldu mótmælendur svo út á Nørrebrogade og að Nørrebros Runddel. Hópur mótmælenda safnaðist svo saman við Jagtvej 69 þar sem Ungdómshúsið stóð áður og kom fyrir ruslagámum sem kveikt var í. Um klukkan 21 að staðartíma höfðu mótmælendur svo safnast saman við nýja Ungdomshuset við Dortheavej. Nokkuð dró úr mótmælunum þegar leið á kvöldið og hafði lögregla þá handtekið milli átta og ellefu manns, meðal annars eftir að hafa ruðst inn í Ungdómshúsið. Ungdómshúsið við Jagtvej var samkomustaður fyrir ólíka hópa ungmenna en því var lokað og rýmt fyrsta dag marsmánaðar 2007. Húsið var rifið nokkrum dögum síðar og fylgdu því mikil mótmæli og óeirðir, þar sem lögregla handtók rúmlega 700 manns.
Mest lesið Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Innlent Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Erlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Erlent Dyravörður tók gest kverkataki Innlent Fleiri fréttir Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Sjá meira