Maður sem sagðist vera að vernda fjölskyldu sína fyrir barni úrskurðaður í nálgunarbann Birgir Olgeirsson skrifar 12. september 2017 14:14 Málið átti sér stað á Breiðdalsvík. Vísir/GVA
Hæstiréttur Íslands hefur staðfest ákvörðun lögreglustjórans á Austurlandi þess efnis að karlmaður skuli sæta nálgunarbanni í fjóra mánuði. Með ákvörðuninni er manninum bannað að koma á eða í námunda við heimili 13 ára gamals drengs. Er jafnframt lagt bann við því að maðurinn komi nær drengnum en 10 metra og jafnframt lagt bann við því að hann veiti drengnum eftirför, nálgist hann á almannafæri eða setji sig í samband við hann með öðrum hætti. Í beiðni réttargæslumanns drengsins kom fram að maðurinn hafi ítrekað veist að drengnum, ýtt við honum, varnað honum vegar og ógnað honum. Höfðu fjöldamörg tilvik verið tilkynnt til lögreglu. Síðasta atvik átti sér stað 12. ágúst síðastliðinn og það þrátt fyrir að lögreglan hafi rætt við varnaraðila daginn áður og farið fram á það við hann að hann léti brotaþola í friði.Fullorðinn maður sem veitist að barni Um sé að ræða fullorðinn mann sem veitist að barni og því sé sérstök og brýn ástæða til þess að bregðast við með nálgunarbanni. Líðan drengsins var sögð óviðunandi og treysti hann sér ekki til að mæta til skóla nú í haust, vegna þess að maðurinn eigi oft leið þangað og hafi meðal annars veist að drengnum þar. Á ákvörðun lögreglustjóra er lýst ellefu tilvikum sem getið sé í málakerfi lögreglu vegna samskipta mannsins við drenginn frá árinu 2015 til 12. ágúst á þessu ári. 11. ágúst síðastliðinn gaf maðurinn skýrslu hjá lögreglu vegna fyrstu 10 tilvikanna og hafi hann staðfest lýsingar margra þeirra að miklu leiti. Var maðurinn hvattur til að láta af afskiptum sínum við brotaþola og honum gerð grein fyrir því að héldi þetta áfram gæti það þýtt að lögreglan yrði að bregðast við því með einhverjum hætti. Strax daginn eftir hafði eiginkona mannsins hringt í lögreglu og tilkynnt að afi drengsins hefði ekið á manninn þar sem hann var á reiðhjóli. Um klukkustund síðar hafi nafngreindur maður haft samband við lögreglu og sagst hafa séð fullorðinn mann á reiðhjóli hjóla á eftir dreng í um 200 metra fjarlægð. Hefði drengurinn verið að reyna að hlaupa undan manninum, en maðurinn hafi þá hjólað fyrir drenginn og neytt hann í tvígang til að stöðva. Hafi maðurinn greinilega verið að hræða drenginn. Vitnið hafi sagst hafa frétt að maðurinn á reiðhjólinu hefði lagt drenginn í einelti. Vitnið hafi sagst ekki þekkja til mála og ekki vilja blanda sér í einhverjar deilur, en sér hafi blöskrað framkoma mannsins gagnvart drengnum. Hafi vitnið sagst reiðubúið að greina lögreglu nánar frá atvikum ef þess yrði óskað.Sakaði drenginn um eignaspjöll og lygar Í skýrslutöku hjá lögreglu sagði maðurinn upphaf málsins hafa átt sér stað á ótilgreindum tíma árið 2015 þegar hann sakaði drenginn um eignaspjöll og síðan lygar þegar hann viðurkenndi ekki verknaðinn. Að sögn mannsins var drengurinn „brjálaður“ og kom til átaka þeirra á milli. Viðurkenndi maðurinn að hafa reynt að varna því að drengurinn færi á brott og óvart slegið hann með flötum lófa þegar drengurinn reyndi að bíta hann. Næstu tilvikum er þannig lýst að maðurinn hafi varnað drengnum för þar sem hann var í fylgd með frænku sinni, rekið hann út af opinberum stað, lagt hönd á hjól brotaþola og haldið því taki uns drengurinn varð sýnilega hræddur, ýtt við honum þar sem þeir mættust á stíg og hrint honum í sundlaug. Þá á maðurinn að hafa fellt brotaþola í jörðina, hrakið hann og annan dreng á brott þar sem þeir léku sér með golfkylfur, veitt brotaþola eftirför þar sem hann var á göngu með hund sinn og hreytt í hann ónotum í sundlaug. Voru vitni að nokkrum þessara tilvika. Maðurinn segir drenginn búa við verulegan hegðunarvanda. Segist maðurinn helst engin afskipti vilja hafa af drengnum en eigi ekki annars úrkosta en að verja börn sín, eiginkonu, heimili og eignir fyrir honum.Vildi samkomulag við foreldra drengsins, ef þeir hefði hemil á honum Fyrir dómi sagðist maðurinn ekki sjá aðra lausn til framtíðar en að drengurinn verði fjarlægður úr umhverfi sínu og komið fyrir í skóla fyrir börn með sérþarfir. Sagðist maðurinn viljugur að ganga að samkomulagi við foreldra brotaþola um að hann láti drenginn afskiptalausan svo lengi sem þau hafi hemil á brotaþola. Í dómi Héraðsdóms Austurlands um málið segir að í ljósi afstöðu mannsins og þess óefnis sem samskipti hans við foreldra varnaraðila virðast vera komin í sé vandséð að önnur og vægari úrræði en nálgunarbann séu tæk að svo komnu. Taldi dómurinn að í því efni verði drengurinn að nóta vafans fremur en maðurinn.
Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt í þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Sjá meira