Jólamarkaður í Potsdam rýmdur vegna sprengjuótta Þórdís Valsdóttir skrifar 2. desember 2017 11:56 Mikill viðbúnaður var við jólamarkaðinn í gær. Vísir/getty
Jólamarkaður í miðborg þýsku borgarinnar Potsdam var rýmdur síðdegis í gær eftir að yfirvöld fundu grunsamlegan böggul sem lögreglan óttaðist að væri heimagerð sprengja. Markaðurinn og verslanir í kring eru enn lokaðar og málið er í rannsókn. Pakkinn grunsamlegi hafði verið sendur í apótek sem er nálægt markaðnum og starfsmaður apóteksins hringdi á lögregluna eftir að hafa opnað pakkann og séð grunsamlega víra. Pakkinn var gegnumlýstur af lögreglunni og við það kom í ljós að hann innihélt nagla í þúsundatali, víra og rafhlöður. Hins vegar fannst ekki kveikjuþráður í pakkanum og er því ólíklegt að sprengjan hefði getað sprungið. Lögreglan aftengdi hina ætluðu sprengju um þremur klukkustundum eftir að hún fannst. Yfirvöld í Potsdam leita nú á svæðinu í kringum jólamarkaðinn til að ganga úr skugga um að ekki sé að finna fleiri grunsamlega pakka þar. Mikill viðbúnaður er í Þýskalandi vegna ótta um hryðjuverkaárásir. Í desember á síðasta ári létust tólf manns í hryðjuverkaárás á jólamarkaði í Berlín þegar maður ók vörubíl inn í þvögu fólks á markaðnum. ISIS hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamska ríkið lýstu yfir ábyrgð á árásinni. Gríðarlega margir jólamarkaðir eru um allt Þýskaland og er aukið eftirlit lögreglu á mörkuðunum og hafa yfirvöld sett upp hindranir utan um suma markaði til þess að verjast bílum.
Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Innlent Fleiri fréttir Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Sjá meira