Bílalest niður Kambana út af Blómstrandi dögum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. ágúst 2016 14:48 Bílalestin niður Kambana um klukkan 14 í dag. vísir
Bæjarhátíðin Blómstrandi dagar stendur nú sem hæst í Hveragerði og er þangað stöðugur straumur af fólki að sögn Jóhönnu M. Hjartardóttur viðburðastjóra hátíðarinnar. „Jú, það er rosalega margt fólk hér en það er orðið árlegt að hingað komi margir og taki þátt í hátíðinni með okkur. Laugardagurinn er svona stærsti dagurinn hjá okkur enda er ísdagur Kjöríss í dag sem trekkir að og heillar marga,“ segir Jóhanna í samtali við Vísi. Ísveisla Kjöríss hófst klukkan 13 í dag og stendur til klukkan 16 en er þetta í tíunda sinn sem hún er haldin. Á boðstólnum er úr mörgum nýstárlegum bragðtegundum að velja í veislunni og má helst nefna Guðna forseta, Hilarrís, Trumpís, Geitamjólkurís og Wasabís.Stöðugur straumur hefur verið í Hveragerði í dag á Blómstrandi daga.vísirJóhanna segir að mikið sé um að vera í bænum og dagskráin sé fjölbreytt; sýningar á vinnustofum og í galleríum, Fornbílaklúbburinn er á staðnum og svo er skemmtidagskrá í lystigarðinum. Aðspurð hversu margir hafa lagt leið sína á hátíðina undanfarin ár og hversu mörgum Hvergerðingar eiga von á segir Jóhanna erfitt að nefna nákvæma tölu. „Þetta hafa verið svona á bilinu sjö til tólf þúsund manns sem hafa verið að koma en bærinn ber þetta mjög vel enda dreifist dagskráin vel um bæinn.“ Mikil umferð hefur verið niður Kambana vegna hátíðarinnar eins og meðfylgjandi myndir sýna en Jóhanna bendir fólki á að einnig sé hægt að fara um Þrengslin; það muni ekki svo miklu í vegalengd en létti á umferðinni um Kambana.
Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Erlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Fleiri fréttir Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Sjá meira