Tuttugu og einni stúlku sleppt úr haldi Boko Haram sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 17. október 2016 08:52 Stúlkunum var rænt af vígasamtökunum Boko Haram fyrir tveimur árum. 197 þeirra eru enn í haldi, eða látnar. vísir/epa
Tuttugu og ein stúlka úr þorpinu Chibok í Nígeríu, sem voru í hópi fleiri stúlkna sem vígasamtökin Boko Haram rændu fyrir tveimur árum, eru komnar aftur til fjölskyldna sinna. Stúlkunum var sleppt úr haldi fyrir helgi en nígerísk stjórnvöld hafa ekki viljað greina frá hvernig samið var um lausn stelpnanna. Haldin var athöfn í Abuja, höfuðborg Nígeríu, til heiðurs stúlknanna um helgina, en enn eru alls 197 stúlkur í haldi samtakanna, eða látnar. Stjórnvöld í Nígeríu segja hins vegar að von sé á að fleiri stúlkum verði sleppt. Stelpurnar þökkuðu fyrir að vera enn á lífi og sögðust hafa verið án drykkjar og matar í allt að fjörutíu daga. „Við bjuggumst aldrei við að þessi dagur myndi koma, en með hjálp guðs erum við lausar úr þrælahaldinu,” sagði ein þeirra við athöfnina um helgina. Stjórnvöld neita því að hafa sleppt föngum, vígamönnum Boko Haram, í skiptum fyrir stúlkurnar, þrátt fyrir að forsetinn sjálfur, Muhammadu Buhari, hafi nýlega sagst reiðubúinn í slíkar viðræður við samtökin. Erlendir fréttamiðlar greina ýmist frá því að föngum hafi í raun og veru verið sleppt í skiptum fyrir stelpurnar á meðan aðrir segja að stjórnvöld hafi greitt hátt lausnargjald með aðstoð svissneskra stjórnvalda. Boko Haram hefur síðastliðin ár háð blóðuga baráttu í norðurhluta Nígeríu. Þau eru í dag nátengd hryðjuverkasamtökunum ISIS en Boko Haram berjast fyrir sjálfstæðu ríki múslima í Nígeríu.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira