Ákvað síðast hver yrði aðalpersónan Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 21. desember 2016 10:45 Þorgrímur Kári beinir sviðsljósinu að aukapersónum í norrænni goðafræði og býr til sögu kringum þær. Vísir/Eyþór Árnason
Nýráður, Angurboða, Ganglöt, Böðvildur, Skinnnefja, Véseti, Ráðbarður, Reginleif og Glumra. Allt eru þetta nöfn sem koma fyrir í nýrri unglingasögu eftir Þorgrím Kára Snævarr. Skögla – helreið Nýráðs til Jötunheima – nefnist bókin og í lok hennar er upptalning á tugum fornra sagna, kvæða og handrita sem höfundurinn notaði til innblásturs. Þorgrímur Kári er nýorðinn 23 ára. Hann lauk í sumar BA-prófi í teiknimyndasagnagerð frá ESA Saint-Luc í Belgíu, einum virtasta skóla sinnar tegundar í Evrópu. En í nýju bókinni beitir hann ekki teiknihæfileikunum heldur lætur bókstafina um að segja frá. Hann kveðst hafa byrjað á sögunni fyrir fimm árum þegar hann var nýbúinn með annað árið sitt í MR. Var hann þá strax kominn með grind að henni í hugann? „Ég vissi svona lauslega hvað mundi gerast, þó ég væri ekki búinn að ákveða alveg allt fyrirfram. Mig langaði að búa til goðsögulega bók byggða á norrænni goðafræði, eftir að hafa lesið Snorra Eddu og Völuspá í MR. En í stað þess að vera með Óðin og Þór í aðalhlutverki vildi ég beina athyglinni á nýja staði. Síðan fór ég að hugsa um söguþráðinn og það síðasta sem ég ákvað var hver yrði aðalpersónan. Ég valdi dverg sem heitir Nýráður og er bara minnst á í dvergatalinu í Völuspá. Skögul er líka bara í nafnatali. Slíkt gildir um margar persónur í bókinni að þær eru bara nefndar á einum stað í hinum fornu ritum og það gaf mér svigrúm til að búa til mínar eigin persónur í kringum nöfnin.“ Án þess að afhjúpa alltof mikið um söguþráðinn þá eru aðalpersónurnar Nýráður og fósturdóttir hans Skögul á ferð til konungsríkis í Svíþjóð sem nefnist Næríki en missa sjónar hvort á öðru. Sagan fjallar mest um leit þeirra hvors að öðru á ný en á þeirri leið mæta þau ýmsum karakterum og lenda í hættum og ævintýrum. Spurður hvort hann hafi strax verið ákveðinn í því sem barn að leggja skriftir og teikningar fyrir sig svarar Þorgrímur Kári: „Ég hef alltaf verið mikið í því að gera sögur og var mest í myndasögugerð þegar ég var yngri. En þetta er fyrsta bókin mín og það var dálítið átak að búa hana til.“ Þorgrímur hefur farið í hina ýmsu skóla að undanförnu og lesið upp, einkum fyrir krakka í 6. til 8. bekk. Hann segir þá áhugasama og hafa þurft að spyrja ótal spurninga. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 21. desember 2016
Menning Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Eva Marie Saint er látin Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Fleiri fréttir Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Sjá meira