Fangageymslur fylltust í nótt Samúel Karl Ólason skrifar 14. nóvember 2016 08:19 Vísir/Vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt og fylltust fangageymslur. Fimm menn voru handteknir í einu húsi eftir að tilkynnt hafði verið um hávaða og slagsmál í partíi í Laugarneshverfi. Mennirnir sem voru handteknir voru grunaðir um líkamsárás og vörslu fíkniefna. Einn var fluttur á slysadeild með minniháttar áverka. Þá var kveikt í IKEA-geitinni í nótt og þrír menn handteknir vegna íkveikjunnar. Ökumaður bíls keyrði aftan á annan bíl á Háaleitisbraut í gær og reyndist hann ekki verið með ökuréttindi. Þá veittist stútur sem stöðvaður var á Vesturlandsvegi að lögreglu. Hann var handtekinn vegna ölvunaraksturs og ofbeldis gegn lögreglu. Allt í allt voru 13 vistaðir í fangageymslum fyrir ýmis brot og einn var í „gistingu að eigin ósk“, eins og það segir í dagbók lögreglunnar. Tilkynnt var um tvö innbrot í bíla og var ýmsum munum stolið úr bílunum og þar á meðal fartölvu úr einum þeirra. Flytja þurfti mann á slysadeild sem hafði dottið á höfuðið á veitingahúsi við Austurstræti seint í nótt. Fyrr um kvöldið hafði maður verið handtekinn á sömu götu eftir að hann braut rúðu á veitingastað með flösku. Þar að auki var ofurölvi maður handtekinn í Kópavogi þar sem hann var með ónæði sem og annar í Egilshöll. Báðir voru vistaðir í fangageymslu.
Mest lesið „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Segir ótímabært að ræða undanþágur Innlent Fleiri fréttir „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Sjá meira