Tala látinna á Ítalíu hækkar stöðugt Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 24. ágúst 2016 13:27
Þrjátíu og átta hið minnsta eru látnir og á annað hundrað er saknað eftir öflugan jarðskjálfta sem skók Ítalíu í nótt. Eyðileggingin er mikil og neyðarástand ríkir í sumum bæjum. Skjálftinn var af stærðinni 6,2 og átti upptök sín um sjötíu og sex kílómetra suðaustur af borginni Perugia á um tíu kílómetra dýpi rétt fyrir klukkan fjögur að staðartíma, eða um klukkan tvö að íslenskum tíma. Skjálftinn er sagður hafa staðið yfir í um tuttugu sekúndur. Yfir áttatíu eftirskjálftar hafa gengið yfir Ítalíu, sá stærsti af stærðinni 5,4. Héruðin Umbria, Lazio og Le Marche urðu hvað verst úti í skjálftanum, en ástandið er einna verst í bænum Amatrice í Lazio héraði. Haft er eftir bæjarstjóranum, Sergio Pirozzi, að borgin sé meira og minna í rúst eftir skjálftann. Nokkuð hefur verið um aurskriður og þá hafa vegir eyðilagst og að minnsta kosti ein brú er að hruni komin. Því hefur björgunarstarf gengið erfiðlega þar sem ekki hefur verið hægt að komast að hinum slösuðu. Pirozzi hefur biðlað til stjórnvalda að senda frekari aðstoð í borgina hið fyrsta. Aðrir bæir sem urðu illa úti í jarðskjálftanum eru Accumoli, Arquata del Tronto og Pescara del Tronto, en almannavarnir á Ítalíu hafa átt erfitt með að greina frá tölu látinna, þar sem hún hækkar stöðugt. Yfirmaður almannavarna, Immacolata Postiglione, sagðist í samtali við þarlenda fjölmiðla óttast að tala látinna eigi eftir að hækka mjög í ljósi þess hve margir séu enn fastir undir húsarústum og hve margra er saknað. Frans páfi ávarpaði gesti á Péturstorginu í morgun, þar sem hann sagði þessar fréttir hræðilegar. Skelfilegt hafi verið að heyra bæjarstjórann tilkynna að Amatrice sé varla til lengur. Skjálftinn fannst víða á Ítalíu og skulfu byggingar meðal annars í Róm, sem er í um 150 kílómetra fjarlægð frá upptökum skjálftans. Hann fannst allt frá Bologna í norðri til Napólí í suðri. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hafa ekki borist fregnir af Íslendingum á svæðinu, en Andri Lúthersson, deildarstjóri upplýsinga hjá ráðuneytinu, hvetur þá sem ekki hafa haft uppi á aðstandendum, og eru áhyggjufullir, að hafa samband við borgaraþjónustu ráðuneytisins.
Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Fleiri fréttir Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Sjá meira