Tilbúnir til að gereyða Pyongyang Samúel Karl Ólason skrifar 11. september 2016 11:40 Frá æfingu hers Suður-Kóreu. Vísir/EPA
Sýni Norður-Kórea merki um beitingu kjarnorkuvopna mun her Suður-Kóreu gjöreyða Pyongyang. Eldflaugar og stórskotalið yrði notað til að brenna borgina til „ösku og þurrka hana af kortinu“. Samkvæmt frétt Yonhap fréttaveitunnar, sem rekin er af suðurkóreska ríkinu, yrði öllum hverfum höfuðborgar Norður-Kóreu eytt, en sérstaklega yrði miðað á mögulega felustaði leiðtoga ríkisins. Norður-Kórea sprengdi kjarnorkusprengju í tilraunaskyni á fimmtudaginn og var í fimmta sinn sem slíkt er gert. Sprengingin var sú stærsta hingað til. Þeir segja að þeim hafi tekist að þróa kjarnorkuvopn sem hægt sé að koma fyrir á eldflaugum.Yfirlit yfir kjarnorkusprengingar Norður-Kóreu.Vísir/GraphicNewsAlþjóðasamfélagið íhugar nú hvernig bregðast eigi við kjarnorkuvopnatilraunum Norður-Kóreu. Þar á meðal vinnur öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að viðskiptaþvingunum, Bandaríkin íhuga eigin þvinganir sem og Japan og Suður-Kórea. Yfirvöld í Pyongyang sögðu hins vegar í dag að hótanir um „tilgangslausar“ viðskiptaþvinganir væru hlægilegar. Þingmenn ríkisstjórnar Suður-Kóreu hafa kallað eftir því að Bandaríkin komi skammdrægum kjarnorkuvopnum aftur fyrir þar í landi og að Suður-Kórea komi mögulega upp eigin kjarnorkuvopnum. „Einungis kjarnorkuvopn virka til að fyrirbyggja notkun kjarnorkuvopna,“ sagði þingmaðurinn Won Yoo-chul í yfirlýsingu eftir tilraunasprengingu Norður-Kóreu. Hann kallaði eftir því að yfirvöld landsins öðluðust kjarnorkuvopn og hefur hann fengið víðtækan stuðning. Ríkisstjórnin segir það þó ekki koma til greina.
Mest lesið Landsmenn allir harmi slegnir Innlent Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi Innlent „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Innlent Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Innlent Sósíalistar og Rússlandsvinir undir eitt þak Innlent Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Innlent Fjögurra daga Njáluhátíð sett á Hvolsvelli í kvöld Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Fleiri fréttir Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi Sjá meira