Vantar 300 starfsmenn í skólana: "Stjórnmálamenn verða að taka þetta mjög alvarlega“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. ágúst 2016 10:00 Jóhanna Einarsdóttir, forseti menntavísindasviðs HÍ, telur styttingu náms ekki lausnina þegar kemur að skorti á kennurum. Vísir/Daníel Rúnarsson
Forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands segir samfélagslega ábyrgð skorta þegar komi að stöðu mála í grunnskólum og leikskólum landsins. Ekki hefur verið ráðið í hátt í 300 stöður í leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum í Reykjavík nú þegar skólahald er í þann mund að hefjast. Í svari Reykjavíkurborgar við fyrirspurn Morgunblaðsins kemur fram að 17. ágúst hafi átt eftir að ráða í 102 stöðugildi í leikskólum Reykjavíkur, 43 í grunnskólum borgarinnar og 127 á frístundaheimili. Jóhanna Einarsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ, segir vandamálið margþætt. Afar fjölmennir árgangar séu að hefja skólagöngu, nýnemum í kennaranámi hafi fækkað undanfarin ár og því til viðbótar séu stórir árgangar kennara að fara á eftirlaun.Nýnemum í grunnskólakennaranámi hefur fækkað frá 211 sem innrituðust árið 2008 í 79 sem hefja nám í haust. Í leikskólakennaranáminu voru 88 sem innrituðust árið 2008 en nú eru 34 nemar sem innritast á fyrsta ár. Hins vegar hefur orðið sú breyting á undanförnum árum að töluverður hópur fólks með BA/BS gráður í ýmsum greinum kemur í framhaldsnám á Menntavísindasviði og lýkur kennaraprófi þannig. Í ár eru 38 nemar í framhaldsnámi í leikskólakennarafræðum og 97 í grunnskólakennarafræðum. Töluverður skortur er á leikskólakennurum.Vísir/DaníelMeiri fækkun en reiknað var meðLög um fimm ára kennaranám tóku gildi árið 2011 og fækkaði nemendum í kjölfarið að sögn Jóhönnu. Það hafi verið viðbúið.„Það gerðist líka á sínum tíma þegar leikskólakennaranámið færðist á háskólastig og grunnskólakennaranámsið sömuleiðis. Það er eðlileg þróun,“ segir Jóhanna. Svipuð umræða kom upp fyrir þremur árum vegna skorts á leikskólakennurum og var bent á að ef um skort á læknum væri að ræða yrði tillagan aldrei að stytta nám lækna. Minni sókn í námið allra síðustu ár hafi hins vegar komið á óvart.„Fækkunin er meiri heldur en við reiknuðum með,“ segir Jóhanna. Stærsta vandamálið sé neikvæð umræða um kennarastéttina en hafa verði í huga að kennaranám sé samfélagslegt verkefni.„Undirstaða velferðar hverrar þjóðar er að hafa góða kennara. Stjórnmálamenn verða að taka þetta mjög alvarlega. Hvað ætlum við að gera sem samfélag til að fá vel menntaða kennara til að starfa í skólum landsins?“ Hún bætir við að ýmis úrræði séu til og leiðir hægt að fara en vilja og fjármagn þurfi til. Forgangsraða þurfi hlutunum.Frá útskrift í Háskóla Íslands.Þarf að verða virðingarstarf á ÍslandiJóhanna segir kennaranámið í HÍ afar gott. Gerð hafi verið úttekt á náminu af erlendum sérfræðingum fyrir tveimur árum og breytingar til batnaðar verið gerðar í kjölfarið.„Við erum með gæðanám en við í háskólanum stýrum ekki umræðunni í samfélaginu, um kennaranámið og kennarastarfið,“ segir Jóhanna og vísar til neikvæðrar umræðu um störf kennara í fjölmiðlum. „Auðvitað fælir það frá.“Aðspurð hvort að það séu þá lág laun sem skipti mestu sé það hluti en ekki aðalatriðið. Í því samhengi bendir hún á Finnland þar sem kennaranám sé afar eftirsótt.„Þar er mikil virðing borin fyrir störfum kennara og til þess tekið að þeir sem gegnga störfum kennara séu mjög áhrifamiklir. Það eru ekki launin sem fólk er að tala um heldur er þetta virðingastarf í þjóðfélaginu og bestu nemendurnir sækja í kennaranámið. Helmingur þeirra sem sækir um kennaranám í stærstu háskólunum í Finnlandi kemst ekki inn.“Umræðuna og samfélagslega ábyrgð um mikilvægi kennaranáms og góðra kennara vanti hér á landi.Gamli Kennaraskólinn.Mynd af vef FornleifaverndarStórir árgangar kennara að hverfa á brautAfar fjölmennir árgangar íslenskra barna eru í leikskólum landsins og að hefja grunnskólagöngu. Á sama tíma sækja færri í kennaranám og stór hópur að fara á eftirlaun.„Það eru mjög fjölmennir árgangar kennara að detta út. Stærstu árgangarnir í gamla Jennaraskólanum, sem útskrifuðust 1972 og 1973,“ segir Jóhanna. Þar hverfi á braut fjöldi reynslumikilla kennara og á sama tíma eru alltof fáir að sækja sér kennaramenntun.„Þessi skortur á kennurum er grafalvarleg staða og ótrúlegt að stjórnmálamenn hafi ekki sett þetta á oddinn núna þegar kosningar eru framundan.“
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Játar innbrot í búin Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent Fleiri fréttir Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann Sjá meira
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent