Tíu ára í talstöðvarsambandi hleypur með í tíunda hlaupi slökkviliðsmanna Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 19. ágúst 2016 10:43 Slökkviliðsmennirnir hlaupa með sérútbúnum hlaupastólum. Vísir/Hanna
Meðlimir Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu hafa allt frá árinu 2006 boðið fötluðum upp á að hlaupa með í Reykjavíkurmaraþoninu í sérútbúnum hlaupastólum. Engin breyting er á því í ár en í fyrsta sinn mun tíu ára gamall blindur drengur vera með í för. Verður hann í talstöðvarsambandi svo hægt sé að lýsa fyrir honum hlaupaleiðinni. „Það er kominn spenningur í okkur hér hjá slökkviliðinu og skjólstæðinga okkar strax að vori,“ segir Ágúst Guðmundsson sem heldur utan um hlaupið fyrir slökkviliðið. „Hann Pálmi Pálmason er til dæmis búinn að fara með okkur frá byrjun og er farinn að hringja í mig í apríl eða maí á hverju ári.“ Hlaupið er með fjóra einstaklinga í fjórum stólum og í ár fylgja 24 meðlimir slökkviliðsins með. Hlaupið er tíu kílómetra og skiptast menn á að stýra stólunum. Í ár mun blindur strákur, hinn tíu ára gamli Teddi, hlaupa með slökkviliðinu. „Við ætlum að tengja hann við talstöð svo við getum betur spjallað við hann á meðan hlaupinu stendur. Við ætlum að lýsa fyrir honum hlaupaleiðinni og hvað fyrir augun ber svo að upplifun hans verði enn meiri,“ segir Ágúst. Slökkviliðið hefur í gegnum tíðina safnað fyrir ýmis samtök en í ár er safnað fyrir SOS - Barnaþorpin en framlögin fara í stuðning við íþróttaiðkun barna sem hafa andlega og líkamlega fötlun. Hægt er að heita á slökkviliðið með því að fara inn á síðu slökkviliðsins á Hlaupastyrkur.is. Reykjavíkurmaraþonið fer fram á morgun, laugardag.
Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Heitt í hamsi vegna Grænlands Innlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Fleiri fréttir Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Sjá meira