Kynna nýjan stjórnarsáttmála í Danmörku Atli Ísleifsson skrifar 27. nóvember 2016 13:20 Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur. Vísir/AFP
Íhaldsflokkurinn í Danmörku hefur samþykkt að taka þátt í myndun nýrrar þriggja flokka ríkisstjórnar með Frjálslynda bandalaginu og flokki forsætisráðherrans Lars Løkke Rasmussen, Venstre, sem hefur farið fyrir minnihlutastjórnar frá þingkosningunum á síðasta ári. Formenn flokkanna þriggja hafa boðað til blaðamannafundar klukkan 14 að íslenskum tíma og er fastlega búist við að þar verði kynntur nýr stjórnarsáttmáli. DR greinir frá þessu. Søren Pape Poulsen, formaður Íhaldsflokksins, greindi frá því fyrr í dag að þingmenn flokksins hefðu sammælst um þátttöku í slíkri stjórn. Fulltrúar flokkanna þriggja hafa átt í viðræðum frá því að Rasmussen bauð stuðningsflokkunum tveimur til viðræðna þann 19. nóvember síðastliðinn. Forsætisráðherrann hefur reynt að bjarga ríkisstjórn sinni með því að bjóða flokkunum tveimur ráðherrastóla til að koma í veg fyrir nýjar kosningar. Anders Samuelsen, formaður Frjálslynda bandalagsins (Liberal Alliance), hefur lengi hótað því að sprengja ríkisstjórnina, verði hátekjuskattur í landinu ekki lækkaður um fimm prósentustig. Nýja ríkisstjórnin verður áfram minnihlutastjórn og mun njóta stuðnings Danska þjóðarflokksins.Marienborgaftale på plads. Trekløverregering på vej… #Trekløver #dkpol pic.twitter.com/93OM11t6YD— Lars Løkke Rasmussen (@larsloekke) November 27, 2016
Mest lesið Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Simmi vinsælasti leynigesturinn Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Innlent Gummi lögga er maður ársins 2025 Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Innlent Fleiri fréttir Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Dótturdóttir JFK er látin Handtóku 357 meinta ISIS-liða í kjölfar mannskæðra átaka „Sannur Finni“ fær hæli í Rússlandi Sífellt fleiri hermenn falla á ári hverju Hvetur ESB til að svara refsiaðgerðunum Bandaríkjanna fullum hálsi Þrítugasta árásin á bát meintra smyglara TikTok-áskorun leiddi til banafalls af útvarpsmastri Blóðbaðið í El Fasher: Milljón manna borg orðin að „draugabæ“ Neita að ræða við Úkraínumenn vegna meintrar árásar á heimili Pútíns Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Á lista yfir þrjú hlýjustu ár í mælingasögunni Selenskí sver af sér drónaárás á heimili Pútíns Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Neita að tjá sig um ummæli Trumps um árás í Venesúela Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Þrír lögregluþjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir átök í Tyrklandi Vill lengri tryggingar og tilbúinn til að hitta Pútín Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Milljón dalir eða meira fyrir náðun Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Sjá meira