Mörgþúsunda munur á kostnaði grunnskólanemenda Una Sighvatsdóttir skrifar 10. ágúst 2016 19:00
Flestir grunnskólar taka saman innkaupalista þar sem fram kemur hvað nemendur þurfa að kaupa af ritföngum fyrir skólaárið. Skólarnir gera hinsvegar mjög mismunandi kröfur um það hvaða gögn börnum ber að útvega fyrir skólaárið. Munurinn á kostnaði milli getur hlaupið á tugum þúsunda milli grunnskóla, og þessi kostnaður fellur allur á foreldrana. Barnaheill vilja breyta lögum þannig að nauðsynleg námsgögn teljist hluti af gjaldfrjálsri menntun barna. Sumir borga 900 krónur en aðrir 12 þúsund Sem dæmi má nefna að á síðasta skólaári var kostnaður foreldris með barn í fyrsta bekk lægstur 900 krónur í einum skóla, á meðan foreldrar barna í öðrum skóla fengu í hendur innkaupalista upp á 12 þúsund krónur. Sömu sögu má segja um önnur aldursstig. Sumir nemendur í 10. bekk þurftu sem dæmi að kaupa inn vörur fyrir 22 þúsund krónur á meðan aðrir jafnaldrar sluppu með 3000 krónur. Þótt grunnmenntun eigi að heita ókeypis getur skólinn því reynst barnafjölskyldum dýr, að sögn Ernu Reynisdóttur framkvæmdastjóri Barnaheilla. „Við getum ímyndað okkur það ef þú ert með nokkur börn í skóla þá er þetta farið að hlaupa í tugum þúsunda í einhverjum tilfellum þannig að án efa er þetta þungur baggi fyrir fjölskyldur og sérstaklega barnmargar fjölskyldur.“ Mikill munur er á því milli grunnskóla hversu dýr innkaupalistinn er sem foreldrar fá í hendur á haustin.Ísafjörður borgar nauðsynleg námsgögn fyrir grunnskólanema Á síðasta skólaári var meðalkostnaður við kaup á námsgögnum á bilinu 7-8 þúsund krónur á hvert barn. Miðað við um 44.000 nemendur á grunnskólaaldri áætlar Samband íslenskra sveitarfélaga því að kostnaður fyrir sveitarfélögin, við að taka yfir þennan kostnað af foreldrum, gæti numið allt að 350 milljónum króna. Eitt sveitarfélag, Ísafjörður, tók það skref þegar fyrir þremur árum að hætta að senda út innkaupalista en skilgreina námsgögnin sem hluta af gjaldfrjálsri menntun. Er það fyrirkomulag haft á í öllum fjórum grunnskólum bæjarins og hefur gefist vel. Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, skólastjóri Grunnskólans á Ísafirði, segir að reynsla síðustu þriggja ára hjá þeim sýni að þetta fyrirkomulag bæði jafni aðstöðu nemenda óháð efnahag en hafi einnig orðið til þess að námsgögnin nýtist betur, þar sem kennarar safni þeim saman í lok vetrar og geymi til næsta skólaárs.Stuðlar að betri nýtingu og hagkvæmni Barnaheill hvetja fleiri sveitarfélög til að fylgja fordæmi Ísafjarðar og benda einmitt á þessi hagkvæmnisrök. „Án efa er hægt að minnka töluvert kostnað við námsgögn með magninnkaupum og með því að samnýta líka. Til dæmis trélitasafnið er hægt að nýta fyrir 2-3 nemendur, það þurfa ekki allir að eiga sett. Þannig að við viljum líka skoða þetta, út frá betir nýtni,“ segir Erna.Áskorun til stjórnvalda um að breyta grunnskólalögum Og Barnaheill ganga lengra og vilja að stjórnvöld breyti lögum um grunnskóla. Þar segir nú að óheimilt sé að krefja nemendur eða foreldra um greiðslu fyrir námsgögn, að undanskildum þeim sem eru til persónulegra nota. „Við viljum líta svo á að ritföng, stílabækur og annað sem foreldrar eru beðnir að kaupa fyrir börnin sín séu hluti af námsgögnum og þar af leiðandi viljum við ekki að foreldar séu rukkaðir fyrir þetta," segir Erna. Undirskriftarsöfnun til stuðnings þessari áskorun er nú farin af stað á vef Barnaheilla.
Mest lesið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Innlent Fleiri fréttir Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Sjá meira