Fram á nótt að slökkva eld í sorphaugum Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 10. ágúst 2016 10:55 Erfiðlega gekk slökkva eld sem kom upp á urðunarstað Sorpurðunar Vesturlands í Fíflholtum á Mýrum í gærmorgun. Vísir/Vilhelm
Töluverður eldur kom upp á urðunarstað Sorpurðunar Vesturlands í Fíflholtum á Mýrum í gærmorgun. Varð hans vart klukkan 7.45 en ekki tókst að slökkva síðustu glæðurnar fyrr en um klukkan fimm í nótt. Þorsteinn Eyjólfsson, staðarhaldari á Fíflholtum, segir í samtali við Vísi að um sjálfsíkveikju hafi verið að ræða sem sé ekki óalgengt á urðunarstöðum þegar nær að hitna í haugunum áður en að urðun á sér stað. Vel hafi gengið í fyrstu að kæfa eldinn en það sé yfirleitt gert með því að kæfa eldinn með rusli. Svo óheppilega vildi þó til að troðarinn sem notaður var til verksins bilaði áður en að tókst að ná tökum á eldinum. Magnaðist eldurinn eftir það og því þurfti að kalla til vörubíla til þess að aka möl yfir hauginn. Ekki tókst að slökkva eldinn fyrr en seint í nótt. Haugarnir verða vaktaðir næstu sólarhringa til þess að ganga úr skugga um að eldurinn blossi ekki upp á nýi. Eldurinn í gær er einn sá mesti á urðunarstaðnum frá því að starfsemin hófst. Mikinn reyk lagði frá urðunarstaðnum og kvörtuðu íbúar í ofanverðum Borgarfirði yfir ólykt sem lagðist yfir sveitirnar í kring. Sorpurðun Vesturlands er í eigu sveitarfélaganna á Vesturlandi og er þar urðað almennt sorp og annað rusl frá Vesturlandi og Vestfjörðum.Töluverðan reyk lagði frá haugunum.Vísir/Vilhelm
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Sjá meira