Hyggst hlaupa þrjá kílómetra í tuttugu sentimetra pinnahælum Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 12. ágúst 2016 21:30
Móðir langveikrar stúlku ætlar ekki að reima á sig hlaupaskóna í Reykjavíkurmaraþoninu eins og flestir, heldur hefur hún ákveðið að hlaupa þrjá kílómetra í tuttugu sentímetra pinnahælum fyrir góðan málstað. Telma Sveinbjarnardóttir er ein fjölmargra sem safna áheitum fyrir Reykjavíkurmaraþonið sem fram fer síðar í mánuðnum. Heiða Kristín, fjögurra ára dóttir hennar, er sú eina sem greinst hefur með Golz syndrome hér á landi. Það er sjaldgæft húðheilkenni sem hefur margvísleg áhrif. Heiða er til að mynda blind á öðru auga og á erfitt með að þyngjast, en hún er aðeins tíu kíló aðþyngd. Telma segir að samtökin Einstök börn, sem Heiða er hluti af, hafi veitt fjölskyldunni ómetanlegan stuðning. Hún vildi því gera eitthvað sérstakt til að vekja athygli á samtökunum, en starfsemin þar er öll unnin í sjálfboðavinnu. „Mér datt þetta í hug þannig að ég ákvað að slá til, að hlaupa á hælum. Þetta eru þrír kílómetrar. Ég hef örugglega gengið lengra á hælum á djamminu eða í Kringlunni þannig að þetta ætti vonandi að vera í lagi,“ segir Telma. Undirbúningur fyrir hlaupið er í fullum gangi. „Það sem ég hef verið að gera er að fara út að hlaupa í strigaskóm. Svo hef ég verið að taka svona tarnir þar sem ég fer á hælunum í göngutúr með stelpurnar eitthvert. En svo er ég búin að vera frekar mikið á hælum í sumar og er mikið búin að vera á hælum alveg síðan í áttunda bekk. Ég hugsa því að það verði í lagi. Ég er vön.“ Skórnir eru engin smásmíði, tuttugu sentimetra pinnahælar. „Ég er búin að eiga þessa frekar lengi og þeir eru þægilegir. Ég er mjög spennt en ég held að það séu flestir í kringum mig mjög kvíðnir. En ég hlakka bara til að gera þetta,“ segir Telma.Heita má á Telmu á heimasíðu Reykjavíkurmaraþons.
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira