Báðar Antonsdæturnar búnar að finna sér ný lið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júlí 2016 15:32 Hildur er búin að semja við Breiðablik. vísir/valli
Hildur Antonsdóttir er gengin í raðir Breiðabliks frá Val. Hildur er komin með leikheimild og gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Blika þegar liðið mætir Selfossi eftir viku. Hildur og systir hennar, Heiða Dröfn, hættu hjá Val fyrir skemmstu en þær eru báðar búnar að finna sér ný lið. Heiða Dröfn fór til HK/Víkings í 1. deildinni og Hildur til Breiðabliks eins og áður sagði. Hildur, sem er tvítugur miðjumaður, hefur leikið með Val allan sinn feril. Hún kom við sögu í átta leikjum hjá Val í sumar en hún hefur alls leikið 80 leiki í efstu deild og skorað 12 mörk. Þá lék Hildur fjölda leikja með yngri landsliðum Íslands á sínum tíma. Hildur er þriðji leikmaðurinn sem Breiðablik fær til sín í félagaskiptaglugganum en áður voru Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Olivia Chance komnar í Kópavoginn. Það kvarnast talsvert úr leikmannahópi Blika seinna í sumar en þrír byrjunarliðsmenn - Ásta Eir Árnadóttir, Guðrún Arnardóttir og Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir - fara til náms í Bandaríkjunum. Það verður nóg að gera hjá Blikum í ágúst þar sem liðið leikur alls átta leiki; fjóra í Pepsi-deildinni, úrslitaleikinn í Borgunarbikarnum við ÍBV og svo þrjá leiki í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Handbolti Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Handbolti „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ Körfubolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti Dagskráin í dag: Spenna í körfunni og fjör í Bestu mörkunum Sport „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Körfubolti Wood færði Forest nauma forystu gegn Villa Fótbolti Besta sætið: Vítaspyrnuvæl og stórleikir um helgina Sport Fleiri fréttir Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Sagan með Val en KR á flugi Uppgjörið: Þróttur R. - FH 2-1 | Sætur sigur Þróttara Gætu endað í þyrlu til Eyja Eiður og Arnór spili ekki á laugardaginn Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram „Við hlógum bara að því“ Anton Ari í Kópavogi til 2028 Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Arnór Ingvi ætti að vera klár fyrir Valsleikinn Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Sjáðu öll 26 mörkin úr Bestu deildinni í gær Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu FH spilaði í blárri Henson treyju: „Við vildum ekki fara bara í einhvern lit“ Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Stjarnan - Valur 2-4 | Stórskemmtun í suddanum á Samsung KR - FH 4-2 | Frábærir KR-ingar Alexander Linta: Stjórnin er að skoða styrkingu á leikmannahópnum Albert lenti í slysi með sleikjó og braut framtönn Breiðablik - Þór Ak. 4-0 | Sóknarleikur Blika vaknaði með látum Víkingur R. - ÍA 4-0 | Víkingar kafsigldu Skagamenn í seinni Fram - ÍBV 5-1 | Framarar með flugeldasýningu gegn vonlausum Eyjamönnum Hefur Valur efni á að spila Samúel í kvöld? Mikilvægt að endurræsa myndlykilinn Sjáðu mörkin fyrir norðan og svakalegt fagn Davíðs Sjá meira