Þefnæmur skólabílstjóri og nágranni með garðslöngu til bjargar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. nóvember 2016 10:19 Potturinn skíðlogaði á áttunda tímanum í morgun en kviknað hafði út frá búnaðinum sem hitar vatnið í pottinum. Mynd/Pétur Davíðsson
Telja má líklegt að góð veðurskilyrði og heppileg tímasetning hafi orðið til þess að ekki fór verr þegar kviknaði í heitum potti í Vatnsendahlíð í Skorradal í morgun. Pétur Davíðsson, íbúi á nálægum bæ, kom á vettvang á áttunda tímanum í morgun og þá skíðlogaði potturinn. Snör handtök Péturs, eiginkonu hans og tveggja nágranna urðu til þess að hægt var að halda eldinum niðri með garðslöngu þar til slökkvliðið kom á Hvanneyri kom á svæðið og slökki eldinn. „Ef það hefði kviknað í klukkan tvö eða þrjú í nótt væri enginn bústaður,“ segir Pétur í samtali við Vísi.Fann brunalykt Pétur lýsir því þannig að glöggur slökkviliðsmaður og skólabílstjóri hafi fundið brunalykt um klukkan korter yfir sjö í morgun. Sá hafði ekki tök á því að grennslast fyrir hvaðan reykurinn kom enda á skólabílsvaktinni. „Ég rýk út, fer í rannsóknarferð og finn í myrkrinu hvar logar,“ segir Pétur. Hann segist hafa í fyrstu talið að bústaðurinn hlyti að vera farinn, svo mikill var eldurinn, en svo sá hann að eldurinn var enn aðeins í pottinum en farinn að teygja sig í pallinn. Hann ræsti slökkviliðið út um leið og fór í að reyna að finna vatn. Þá kom eiginkona Péturs til aðstoðar. Eftir að hafa náð í eiganda sumarbústaðarins símleiðis og fengið leiðbeiningar um aukalykla komst Pétur inn í sumarbústaðinn og gat opnað fyrir rennsli vatns. Í framhaldinu komu tveir nágrannar á vettvang og nýttu þau garðslönguna til að halda aftur af eldinum sem náði fyrir vikið ekki að teygja sig í húsið.Skorradalurinn púðurtunna „Ef potturinn hefði verið upp við bústaðinn, eins og oft er, þá hefði farið að skíðloga í bústaðnum,“ segir Pétur. Hann er vel inni í málum þegar kemur að brunavörnum enda er um að ræða stöðugt áhyggjuefni íbúa og landeigenda í Skorradal. Er skemmst að minnast þegar kviknaði eldur í dalnum fyrir rúmum þremur árum út frá flugeldi. Þá, líkt og nú var mikil mildi að logna var í Skorradal. Þá minnti slökkviliðsstjórinn Bjarni Kristinn Þorsteinsson á að Skorradalurinn væri púðurtunna í miklum þurrkum. „Ástandið getur orðið mjög hættulegt vegna veðurfarsbreytinga,“ sagði Bjarni. Sökum þéttleika sumarhúsabyggðarinnar gæti eignatjón orðið verulegt ef eldur læsir sig í gróðurinn á svæðinu. Þá er hugsanlegt að fólk verði innlyksa vegna gróðurelda á svæðinu.
Tengdar fréttir Aðeins ein viðbragðsáætlun til vegna gróðurelda Búnaði og þjálfun slökkviliða er ábótavant með tilliti til gróðurelda. Sveitarfélög hafa enga burði til að bregðast við sífellt meiri hættu á miklum gróðureldum. Aðgerða er þörf strax var mat innan fjögurra lögregluumdæma árið 2011. 5. mars 2014 10:39 Sjóðandi heitt vatn setur menn og dýr í stórhættu Hluti af hitaveitulögnum Orkuveitu Reykjavíkur (OR) í Skorradal er úr sér genginn og skapar stórhættu fyrir menn og dýr. Ein lögnin fór sundur í gær með þeim afleiðingum að þúsundir lítra af 90 gráðu heitu vatni láku út og mynduðu stóra tjörn. 8. apríl 2013 07:00 Vaxandi hætta á gróðureldum „Fólk getur hreinlega lokast inni í eldhafi.“ 5. mars 2014 13:23 Mest lesið Leiddur frá borði hlekkjaður og með bundið fyrir augu Erlent „Viðbrögð utanríkisráðherra eru til skammar“ Innlent Vaktin: Maduro handtekinn eftir árás á Venesúela Erlent Nafn konunnar sem lést á Hvolsvelli Innlent „Allavega er þessi einræðisherra farinn“ Innlent Þessi bjóða sig fram fyrir Samfylkinguna í Reykjavík Innlent Rennibrautinni lokað eftir fjölda óhappa Innlent Banaslys á Biskupstungnabraut Innlent Alvarlegt bílslys á Biskupstungnabraut Innlent Íslenskur maður lést í Úkraínu Innlent Fleiri fréttir „Viðbrögð utanríkisráðherra eru til skammar“ Þessi bjóða sig fram fyrir Samfylkinguna í Reykjavík „Allavega er þessi einræðisherra farinn“ Nafn konunnar sem lést á Hvolsvelli Banaslys á Biskupstungnabraut Krakkarnir beðið um að halda áfram heimsóknum á Hrafnistu Alvarlegt bílslys á Biskupstungnabraut Hótaði að nauðga manni og skallaði annan vegna húðlitar Stærðfræðikennarinn Stein sækist eftir fjórða sæti Langar raðir á Sorpu eftir hátíðarnar Sjálfstæðisflokkurinn í 35 prósentum Rýnt í stöðuna í Venesúela og Sjálfstæðisflokkurinn á flugi Rennibrautinni lokað eftir fjölda óhappa Dóra Björt vill þriðja eða fjórða sæti Vilhjálmur tekur oddvitaslaginn í Reykjanesbæ Spunaleikari vill annað sæti Samfylkingarinnar í borginni „Miður að bensínhákum sé umbunað“ Íslenskur maður lést í Úkraínu Nýársbarnið á Suðurlandi býr á Eyrarbakka Réttindalaus og keyrði á kyrrstæðan lögreglubíl Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Verðlækkanir á bensíni og áramótaheit landsmanna 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga Fjögur vilja tvö efstu hjá Viðreisn Kristín vill fyrsta sætið Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Þremur þjófum vísað úr landi Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Hlutfall fínasta svifryksins áberandi hátt á nýársnótt Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Sjá meira
Aðeins ein viðbragðsáætlun til vegna gróðurelda Búnaði og þjálfun slökkviliða er ábótavant með tilliti til gróðurelda. Sveitarfélög hafa enga burði til að bregðast við sífellt meiri hættu á miklum gróðureldum. Aðgerða er þörf strax var mat innan fjögurra lögregluumdæma árið 2011. 5. mars 2014 10:39
Sjóðandi heitt vatn setur menn og dýr í stórhættu Hluti af hitaveitulögnum Orkuveitu Reykjavíkur (OR) í Skorradal er úr sér genginn og skapar stórhættu fyrir menn og dýr. Ein lögnin fór sundur í gær með þeim afleiðingum að þúsundir lítra af 90 gráðu heitu vatni láku út og mynduðu stóra tjörn. 8. apríl 2013 07:00