Það er ekki leiðinlegt að opna vefsíðu danska fjölmiðilsins Politiken í dag. Þar er tekið á móti fólki með íslenska fánanum og orðunum: Áfram Ísland.
Þar lýsir Politiken yfir stuðningi við íslenska landsliðið á EM og er með íslenska fánann í O-inu á merki fjölmiðilsins.
Danir eru auðvitað ekki með á EM að þessu sinni og því þurfa þeir að halda með einhverjum öðrum. Margir Íslendingar hafa haldið með Dönum á stórmótum og nú er komið að því að þeir haldi með okkur.
Svo fylgir með skemmtileg umfjöllun um íslenska landsliðið og stemninguna hjá Íslendingum í kringum mótið. Þessi pistill Mads Zacho Teglskov til íslensku þjóðarinnar er sérstaklega skemmtilegur.
Ef einhver er síðan að koma úr sex mánaða hellaferð þá má geta þess að Ísland hefur leik á EM í kvöld klukkan 19.00. Þá mætir Ísland liði Portúgal.
Leikurinn verður í beinni textalýsingu á Vísi og síðan fylgir ítarleg umfjöllun og viðtöl við strákana eftir leikinn.
Politiken heldur með Íslandi

Tengdar fréttir

Mótherjar dagsins frá Portúgal: Ekki lengur bara Cristiano Ronaldo
Fréttablaðið skoðaði nánar mótherja dagsins hjá íslenska fótboltalandsliðinu á Evrópumótinu í Frakklandi. Ísland mætir Portúgal í fyrsta leik sínum.

Stærsta stundin í sögu íslenska fótboltans
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta spilar sinn fyrsta leik á stórmóti frá upphafi þegar það mætir Cristiano Ronaldo og félögum í Saint-Étienne í kvöld. Fyrirliðinn segist ótrúlega stoltur af því að fá að spila fyrir íslenska þjóð og annar þjálfarinn segir þetta stærstu stundina í íslenskri fótboltasögu.

Götuspjall í Saint-Étienne: „Vive la Islande“, tungumálaörðugleikar og vopnaðir verðir
Allra þjóða kvikindi var að finna að morgni leikdags á lestarstöðinni í Saint-Étienne.

EM í dag: Lognið á undan storminum í Saint-Étienne
Í þriðja þætti EM í dag er farið yfir leikinn gegn Portúgal í kvöld auk þess sem að blaðamannafundur íslenska liðsins í gær er gerður upp.

Fan Zone-ið í Saint-Étienne verður opnað klukkan 15
Áfengi verður selt á svæðinu.