Handbolti

Einstakt EM-ár hjá einni þjóð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Evrópumeistararnir okkar; Dagur Sigurðsson og Þórir Hergeirsson.
Evrópumeistararnir okkar; Dagur Sigurðsson og Þórir Hergeirsson. vísir/getty/afp
Íslenskir handboltaþjálfarar halda áfram að gera það gott og tókst að gera árið 2016 að því besta til þessa. Fjögur gull voru í boði á stórmótum ársins og íslenskir þjálfarar náðu þremur þeirra.

Guðmundur Guðmundsson gerði Dani að Ólympíumeisturum í ágúst en tveir aðrir þjálfarar voru að skila flottum árangri á báðum stórmótum ársins.

Þórir Hergeirsson og Dagur Sigurðsson áttu báðir magnað og um margt keimlíkt ár þar sem þeir stýrðu landsliðum sínum í verðlaunasæti á tveimur stórmótum.

Þórir og Dagur eiga það líka sameiginlegt að þeir stýrðu landsliði sem þeir bjuggu til, Dagur með því að hreinsa vel til innan þýska landsliðshópsins og hrista vel upp í hlutunum en Þórir með áralangri uppbyggingu norska kvennalandsliðsins.

graf/guðmundur snær
Það bjuggust ekki margir við miklu af þýska karlalandsliðinu þegar það mætti vængbrotið til leiks á EM í Póllandi í janúar. Liðið var án margra lykil­manna og þar á meðal voru hornamennirnir Uwe Gensheimer fyrirliði og Patrick Groetzki sem höfðu farið fyrir liðinu á fyrsta stórmóti þess undir stjórn Dags. Dagur fann nýja menn og breikkaði um leið hópinn fyrir komandi verkefni.

Þrátt fyrir öll forföllin og tap fyrir Spáni í fyrsta leik þá tókst Degi á aðdáunarverðan hátt að snúa vörn í sókn og búa til meistaralið sem vann síðustu sjö leiki sína á mótinu. Liðið endaði á sannfærandi sjö marka sigri á Spáni og sýndi þá hvað það hafði vaxið og dafnað frá því í tapinu í fyrsta leik.

Dagur mætti með talsvert meiri væntingar og jafnframt með flesta lykilmenn heila á Ólympíuleikana. Það stefndi í mögulegan Íslendingaslag í úrslitaleiknum en Þjóðverjum tókst ekki að komast í gegnum tvöfalda Ólympíumeistara Frakka í undanúrslitunum. Þýska liðið vann bronsið sannfærandi eftir sigur á Pólverjum og Guðmundur Guðmundsson sá svo um að stoppa sigurgöngu Frakkanna í úrslitaleiknum.

Undir stjórn Þóris Hergeirssonar unnu norsku stelpurnar alla átta leiki sína á Evrópumótinu í Svíþjóð, þar á meðal sigur á báðum liðunum sem spiluðu til úrslita á Ólympíuleikunum í Ríó.

Dagur Sigurðsson vann til tvennra verðlauna á árinu.vísir/epa
Norska liðið varð þá að sætta sig við bronsverðlaunin eftir tap í dramatískri framlengingu á móti verðandi Ólympíumeisturum Rússa. Norska liðið kom til baka eftir vonbrigðin og vann sannfærandi sigur í bronsleiknum.

Liðið kláraði síðan alla átta leiki sína á EM og þrátt fyrir fimm gullverðlaun undir stjórn Þóris á síðustu sex árum þá var þetta í fyrsta sinn sem liðið vinnur alla leiki sína á stórmóti eftir að hann tók við sem aðalþjálfari.

Samanlagt stýrðu þeir Dagur og Þórir landsliðum sínum til sigurs í 27 af 32 leikjum á stórmótunum tveimur á árinu 2016. Íslensku þjálfararnir tveir fögnuðu sigri í 84 prósent leikjanna á EM og ÓL sem er mögnuð tölfræði.*

Heilt yfir eru íslenskir þjálfarar nú handhafar fjögurra af sex stórmótatitlum í boði en það er aðeins heimsmeistaragull karla (Frakkland 2015) og Ólympíugull kvenna (Rússland 2016) sem standa út af borðinu. Guðmundur Guðmundsson (Danmörk) og Dagur Sigurðsson (Þýskaland) stýra báðir sínum landsliðum í síðasta sinn á HM í Frakklandi í byrjun næsta árs og gætu því bætt úr því.

Þórir Hergeirsson er ríkjandi heims- og Evrópumeistari.vísir/afp
Þjálfarar Evrópumeistaraliða í handbolta

2016

Karlar: Þýskaland (Dagur Sigurðsson, Ísland)

Konur: Noregur (Þórir Hergeirsson, Ísland)

2014

Karlar: Frakkland (Claude Onesta, Frakkland)

Konur: Noregur (Þórir Hergeirsson, Ísland)

2012

Karlar: Danmörk (Ulrik Wilbek, Danmörk)

Konur: Svartfjallaland (Dragan Adzic, Svartfjallaland)

2010

Karlar: Frakkland (Claude Onesta, Frakkland)

Konur: Noregur (Þórir Hergeirsson, Ísland)

2008

Karlar: Danmörk (Ulrik Wilbek, Danmörk)

Konur: Noregur (Marit Breivik, Noregur)

2006

Karlar: Frakkland (Claude Onesta, Frakkland)

Konur: : Noregur (Marit Breivik, Noregur)

2004

Karlar: Þýskaland (Heiner Brand, Þýskaland)

Konur: Noregur (Marit Breivik, Noregur)

2002

Karlar: Svíþjóð (Bengt Johansson, Svíþjóð)

Konur: Danmörk (Jan Pytlick, Danmörk

2000

Karlar: Svíþjóð (Bengt Johansson, Svíþjóð)

Konur: Ungverjaland (Lajos Mocsai, Ungverjaland)

1998

Karlar: Svíþjóð (Bengt Johansson, Svíþjóð)

Konur: Noregur (Marit Breivik, Noregur)

1996

Karlar: Rússland (Vladimir Maksimov, Rússland)

Konur: Danmörk (Ulrik Wilbek, Danmörk)

1994

Karlar: Svíþjóð (Bengt Johansson, Svíþjóð)

Konur: Danmörk (Ulrik Wilbek, Danmörk)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×