„Mjög margt“ sem fór úrskeiðis Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 2. desember 2025 19:33 Elín Rósa Magnúsdóttir var súr og svekkt yfir spilamennsku liðsins í kvöld. Alex Gottschalk/DeFodi Images/DeFodi via Getty Images Elín Rósa Magnúsdóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, segir að fátt hafi gegnið upp hjá liðinu gegn Svartfjallalandi í kvöld.
Íslensku stelpurnar máttu þola níu marka tap gegn Svartfjallalandi í milliriðli 2 í kvöld, 27-36. „Það var bara mjög margt,“ sagði Elín Rósa, aðspurð að því hvað hefði farið úrskeiðis í leiknum. „Við vorum galopnar í vörninni, ekki nógu áræðnar í sókn og þegar við erum svona í vörn kemur náttúrulega lítil markvarsla. Við vorum bara sjálfum okkur verstar.“ Eins og aðrir í og í kringum liðið talar hún um að íslenska liðið hafi náð litlu floti á boltann í sókn. „Það var kannski bara lítið flot. Við vorum staðar fannst mér og mikið að drippla og ekki að nýta okkur það þegar þær voru flatar. Við létum boltann ekki rúlla nógu vel. Þannig það var ýmislegt sem fór úrskeiðis.“ Hún segist vera svekktust með það hvernig íslenska liðið mætti til leiks. „Bara það hvernig við komum inn í þennan leik. Mér fannst vanta orkuna sem er búin að vera í síðastliðnum leikjum. Við vorum með allt of lágt orkustig. Við fengum alveg eldræðuna í hálfleik þegar þetta var enn þá leikur. En við bara náum ekki að komast inn í leikinn almennilega.“ Um eldræðu Arnars Péturssonar, þjálfara liðsins, segir hún að Arnar hafi minnt þær á að þær hafi átt nóg inni. „Við sýndum það í síðustu leikjum að við getum alltaf snúið þessu við. Þetta voru bara þrjú mörk í hálfleik, sem er ekki neitt. Hann var bara að peppa okkur áfram,“ sagði Elín að lokum. Klippa: Elín Rósa eftir tapið gegn Svartfjallalandi
Landslið kvenna í handbolta HM kvenna í handbolta 2025 Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Sjá meira