Aldís Ásta ólétt og flytur heim til Íslands Sindri Sverrisson skrifar 2. desember 2025 13:00 Aldís Ásta Heimisdóttir flytur heim til Íslands sem sænskur meistari. Skara HF Handboltakonan Aldís Ásta Heimisdóttir, sem verið hefur lykilmaður í sænska meistaraliðinu Skara, hefur ákveðið að flytja heim til Íslands þar sem hún á von á barni í vor.
Aldís Ásta átti ríkan þátt í því að Skara varð deildarmeistari og svo Svíþjóðarmeistari á síðustu leiktíð og hún segir það ekki auðvelda ákvörðun að yfirgefa félagið. Í úrslitakeppninni síðasta vor skrifaði hún undir framlengingu til eins árs við Skara eftir að hafa komið til félagsins árið 2022, frá KA/Þór þar sem hún var einnig algjör lykilmaður. „Ég mun sakna Skara mjög mikið og ég er svo þakklát fyrir tímann sem ég fékk þar og allt fólkið sem ég hitti og skapaði minningar með. Besta minningin mín er klárlega sænski meistaratitillinn á síðasta tímabili. Það var sérstök stund sem ég mun aldrei gleyma,“ sagði Aldís Ásta á heimasíðu Skara. „Svo mun ég sakna þess að koma á æfingar, hitta stelpurnar og þjálfarana, hafa gaman með þeim og verða betri með hverri æfingu. Svo mun ég virkilega sakna áhorfendanna í Skara, þeir eru sérstakir og að hlaupa inn á völlinn fyrir framan fullan sal var uppáhalds augnablikið mitt,“ sagði Aldís Ásta sem tekur fram að hún sé alls ekki hætt í handbolta og eigi góðar fyrirmyndir. „Mig langar virkilega að halda áfram að spila handbolta og markmið mitt núna er að koma sterkari til baka. Melanie, Sara, Ewe og Berra eru þær sem ég hef litið mikið upp til og þær hafa kennt mér mikið á handboltavellinum. Þær hafa allar komið til baka eftir meðgöngu og ég er hrifin af þeim og ég mun fá ráð frá þeim um hvernig þær komu til baka eftir meðgöngu,“ sagði Aldís Ásta.
Sænski handboltinn Mest lesið Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Fótbolti Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Fótbolti Eva bætti hvert metið á fætur öðru Golf Fleiri fréttir Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Sjá meira