Enski boltinn

Helgin í enska boltanum gerð upp á Vísi | Sjáðu öll tilþrifin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Liverpool-menn fagna sigurmarkinu á móti Everton.
Liverpool-menn fagna sigurmarkinu á móti Everton. Vísir/Getty
Vísir býður lesendum sínum upp á að sjá allt það helsta sem átti sér stað í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Chelsea hélt sigurgöngu sinni áfram í sautjándu umferðinni og Liverpool endaði hana á því að komast upp í annað sætið. Manchester-liðin unnu bæði sína leiki en Arsenal tapaði öðrum leiknum í röð nú á móti Manchester City. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea töpuðu enn einu sinni á útivelli.

Hér fyrir neðan má sjá myndbönd þar sem farið yfir öll atvik helgarinnar í ítarlegum myndböndum. Það má finna samantektir úr hverjum einasta leik auk þess sem hver dagur er gerður upp í einu myndbandi.

Að lokinni hverri umferð er hún svo gerð upp með því að skoða bestu mörkin, bestu markvörslurnar og fyndnustu augnablikin.

Samantektir úr leikjum birtast ávallt í lok hvers leikdags og eru í birtingu í eina viku. Þau má öllu jafna nálgast á sjónvarpsvef Vísis með því að smella á „Íþróttir“ og „Enski boltinn“.

Messan var á dagskrá Stöðvar 2 Sports í gærkvöldi og munu valdar klippur úr henni birtast á Vísi í dag.

Umferðin gerð upp:

Samantektir helgarinnar:

Stakir leikir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×